Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari staðfestir í skriflegu svari til Vísis að embættið hafi óskað eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í málinu.
Konan í málinu hlaut alvarlega áverka, meðal annars rifbeinsbrot og heyrnartap. Meirihluti Landsréttar, tveir dómarar af þremur, taldi ósannað að maðurinn hefði af ásetningi gengið lengra en hann hafði réttmæta ástæðu til að ætla að konan samþykkti. Þriðji dómarinn skilaði sératkvæði og vildi staðfesta sakfellinguna.
Ræddu harkalegt kynlíf
Maðurinn hélt því fram fyrir Landsrétti að konan hefði samþykkt að stunda með honum harkalegt kynlíf þar sem meðal annars mætti slá hana og taka hana hálstaki. Hann sagði þau hafa rætt um slíkt kynlíf fyrir fram og sammælst um öryggisorð sem hún gæti notað til að stöðva hann eða setja honum mörk.
Í dómi Landsréttar er vísað til samskipta þeirra á Instagram skömmu áður en konan kom heim til hans. Þar hafði maðurinn greint henni frá því að hann hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi. Hann spurði meðal annars hvort hún vildi láta slá sig og kyrkja og svaraði konan því játandi.
Landsréttur taldi að af samskiptunum mætti ráða að konan hefði gert sér grein fyrir því að maðurinn hefði áhuga á harkalegu kynlífi. Hún hefði gefið skýrt til kynna að hún væri tilbúin að prófa það með honum.
Sagði öryggisorðið þegar hún var að kafna
Fyrir dómi sagði maðurinn að þau hefðu einnig rætt um mörk þegar konan kom heim til hans. Hann hefði spurt hana hvort eitthvað væri sem hann mætti alls ekki gera og hún svarað því til að hún hefði engin sérstök mörk. Þá hefðu þau sammælst um öryggisorð.
BDSM á Íslandi voru á meðal þeirra sem fordæmdu sýknudóminn í Landsrétti.
Konan lýsti samskiptunum með öðrum hætti. Hún sagði að þau hefðu lítið rætt saman áður en kynmökin hófust og að maðurinn hefði ekki kannað hvort henni þætti í lagi að halda áfram þegar á reyndi. Hún hefði notað öryggisorðið þegar hún hefði verið að kafna, maðurinn slakað lítillega á hálstaki sínu en haldið áfram. Hún hefði frosið og henni fundist hún ekki geta brugðist við.
„Ég fraus, ég hafði ekki tækifæri til að mótmæla eða segja nokkurn skapaðan hlut, það var aldrei tékkað á mér, athugað hvort ég væri í lagi eða hvort það mætti halda áfram,“ sagði konan fyrir dómi.
Krefjast úttektar á meðferð kynferðismála
Við meðferð málsins í héraði kom fram að maðurinn ætti að baki tveggja og hálfs árs dóm, að mestu skilorðsbundinn, frá árinu 2020 fyrir nauðgun, kynferðislega áreitni og ofbeldi í nánu sambandi. Í kjölfar sýknudómsins hófst undirskriftasöfnun á Ísland.is, þar sem krafist er úttektar á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála. Rúmlega níu þúsund manns hafa skrifað undir.
Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir, verkefnastjóri við Háskóla Íslands og fyrrverandi talskona samtakanna Líf án ofbeldis, var meðal þeirra sem gagnrýndu sýknudóminn harðlega. Þá vakti athygli að af dómurunum þremur vildu tveir karlar sýkna í málinu en kvendómarinn sakfella. Í héraði var aðeins einn dómari, kona, sem dæmdi karlmanninn í fimm ára fangelsi.
„Þessi dómur er mjög sláandi. Það er farið rækilega yfir í dómsorðunum hvað felst í samþykki, lögum samkvæmt, og hvað felst ekki í samþykki. Það er auk þess viðurkennd þekking á viðbrögðum þolenda nauðgana sem eru lífeðlisleg viðbrögð þannig að viðkomandi getur frosið. Samt komast þeir að þeirri niðurstöðu að konan hafi í þessu máli ekki gert nóg til að stoppa manninn. Þeir leggja alla ábyrgðina á konuna þó að hún hafi ekki getað andað, þó að hún hafi í rauninni afturkallað samþykki sitt með nægilegum hætti með því að segja umsamið öryggisorð sem talað er um í dómnum líka. Þannig að dómararnir tveir eru að mínu mati í mótsögn við sjálfa sig í dómnum,“ sagði Sigrún Sif við Vísi í október.