Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson, markaðsstjóri Nova, segir í svari við fyrirspurn Vísis að rekstur skautasvellsins hafi gengið vel í þann áratug sem félagið hefur komið að því og verið stór hluti af jólunum. Fyrirkomulagið hafi verið svipað árum saman og nú vilji Nova prófa nýjar hugmyndir og koma fólki á óvart.
„Þess vegna ákváðum við að taka eitt skref til baka og kveðja svellið að þessu sinni, til að geta tekið tvö skref fram á við og gert eitthvað nýtt og spennandi,“ segir Sigurbjörn.
Nova hefur rekið skautasvellið í samstarfi við Luxor, Manhattan og Reykjavíkurborg en Sigurbjörn segir félagið opið fyrir verkefnum af þessu tagi.
„Þetta þýðir ekki að við séum búin að segja skilið við verkefni af þessu tagi til lengri tíma, heldur lítum við frekar á þetta sem upphafið á nýjum kafla, en fram undan eru spennandi tímar breytinga hjá Nova með flutningi í nýjar höfuðstöðvar í Álfabakka á næsta ári,“ segir Sigurbjörn.
Umhverfis- og skipulagsráð tók fyrir kynningu á Jólaborginni Reykjavík á fundi sínum í gær. Í kynningu verkefnisins kemur fram að það verði ókeypis að fara á svellið og boðið verði upp á skautaleigu gegn gjaldi.
Skautasvellið verður opið flesta daga frá hádegi til tíu á kvöldin fram yfir áramót og hægt að bóka tíma fyrir hópa fyrir hádegi.
Verktakinn sem tók við svellinu þarf að geta sett upp 300 til 430 fermetra svell úr alvöru ís, útvegað búnað og mannað svellið. Honum er jafnframt falið að sjá um viðhald, öryggi og leyfi ásamt því að ganga frá torginu að rekstri loknum.
Samkvæmt auglýsingu borgarinnar átti rekstraraðilinn að bera rekstraráhættuna og getur aflað sér tekna af skautaleigu og sölu veitinga á borð við heitt súkkulaði. Umsækjendur gátu óskað eftir styrk frá borginni en af þeim sem uppfylltu lágmarkskröfur átti borgin að velja þann sem óskaði eftir lægsta framlaginu.