Þetta staðfestir Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn sjúkrabíll og einn dælubíll slökkviliðsins voru sendir á staðinn til að tryggja vettvang.
„Þetta var ekki jafn slæmt og þetta leit út við fyrstu sýn. Þetta er það sama og gerist á hverju ári þegar fyrsti snjórinn fellur. Fólk er kannski ekki búið að skipta um dekk og hálkan kemur því í opna skjöldu,“ segir Guðjón.
Hann biðlar til fólks að hafa varann á í umferðinni í dag enda snjór og hálka víðast hvar á höfuðborgarsvæðinu. Ökumaðurinn var einn í bílnum en ekki liggur fyrir hvers konar áverka hann hlaut.
Ökumaðurinn var við störf hjá fyrirtækinu Stál og suðu ehf. þegar að umferðarslysið varð.
Daníel T. Jónsson, verkefnastjóri hjá fyrirtækinu, staðfestir í samtali við fréttastofu að ökumaðurinn hafi sloppið með skrekkinn.
„Við kíktum þarna og hann er mjög heppinn að hafa gengið í burtu frá þessu. Það er eiginlega ótrúlegt því vegriðið var eiginlega komið í andlitið á honum. Hann var í smá áfalli eftir þetta. Hann er með einhverjar skrámur en engin beinbrot eða neitt alvarlegt. Hann var fluttur á sjúkrahús því þeir vildu kíkja eitthvað á hann.“
Hann varar við því að aðstæður á veginum séu mjög erfiðar. „Það er vel hált þarna, alveg fljúgandi hálka,“ segir hann og bindir vonir við að fólk gæti sín í umferðinni.