Í tilkynningu Defend Iceland kemur fram að fyrirtækið hafi ákveðið að berjast við eld með eldi og þess vegna þróað gervigreindarhakkara sem líki eftir hegðun gervigreindarerindreka sem búnir séu til með illt í huga.
„Við vitum það að þetta er það sem er að gerast, þetta er þróunin sem er að gerast úti í heimi hjá meinfýsnum aðilum,“ sagði Guðmundur Karl Karlsson, sérfræðingur í rannsóknum og þróun hjá Defend Iceland.
„Þessi tól eru komin í hendurnar á öllum og við vildum bara vera á undan og bjóða upp á sömu þjónustu, í jákvæðum tilgangi. Stoppa upp í götin sem þarf að stoppa í áður en það er um seinan.“
Upplýsingar undir sem gætu skipt allt þjóðfélagið máli
Hakkari Defend Iceland fann hundruð veikleika í íslenskum tölvukerfum og nánast hjá öllum þeim sem kerfi voru skoðuð. Viðkomandi aðilum var bent á veikleikana og nánast undantekningalaust var brugðist hratt og vel við, upplýsingarnar sem eru undir hafi verið af ýmsum toga.
„Þetta er allt frá því að það liggi undir einhverju sem við skulum segja að skipti meðaljón engu máli en skiptir fyrirtækið sjálft máli, upp í það sem skiptir allt þjóðfélagið máli og þá erum við að tala um töluverðu máli.“
Almennt þurfi að huga að öryggismálum hér á landi í mun meira mæli en hingað til hefur verið gert. Litla þekkingu þurfi til að finna veikleika í kerfum.
„Áður var þetta þannig að þú þurftir alla að vera með djúpa þekkingu í raun og veru á forritun eða að vera hakkari yfirhöfuð. Núna festa þeir sig eiginlega ekkert, þú bara getur vísað einhverju módeli á einhvern stað og sagt honum að byrja.“
Þörf sé á að viðbúnaðarstig sé hækkað
Sjálfur segist Guðmundur ekki hrifinn af því að tengja heimilistæki sín við netið. Nauðsynlegt sé að uppfæra tæki þegar uppfærsla er tilbúin en ólíklegt sé að einhver nýti sér veikleika í ryksugum heima hjá fólki. Viðkvæmari tæki gætu þó verið í hættu.
„Það er fullt af myndavélum opnum út á netið á heimilum fólks sem hefur ekki hugmynd um það. Að einhver sé að horfa á þær er ólíklegt en þær eru þarna og ég myndi ekki vilja það fyrir mig.“
Hann vilji ekki stunda hræðsluáróður en bendir á að á dögunum hafi Norðmenn hækkað viðbúnaðarstig sitt vegna tölvuógna.
„Við verðum að gera það sama. Oftast er þetta að það vantar fjármagn til þess að gera þessa hluti en það er eitthvað sem við þurfum að forgangsraða. Að hækka viðbúnaðarstig er eitthvað sem ég vil sjá allavega, að við myndum fjárfesta meira í þessu sem þjóðfélag.“