RÚV greinir frá niðurstöðu dómsins sem kveðinn var upp á tólfta tímanum. Hann hefur ekki verið birtur á vef dómstólanna og liggja forsendur hans því ekki fyrir.
Í ákæru á hendur manninum sagði að 13. september 2023 hefði hann ekið skotbómulyftara um Lækjargötu við Vonarstræti í Reykjavík undir áhrifum örvandi efna. Hann hefði því verið ófær um að stjórna vélinni og ekið með gaffla lyftarans í um sjötíu sentímetra hæð og án nægilegrar athygli ekið á sendibíl þannig að gafflarnir stungust inn í sendibílinn. Afleiðingarnar voru þær að 37 ára karlmaður lést samstundis.
Lyftaranum var ekið eftir vinstri akrein Lækjargötu í suðvestur, eins og sjá má á myndinni að ofan, en samhliða honum var strætisvagn sem beygði til hægri inn í Vonarstræti. Sendibifreiðinni var ekið frá Vonarstræti yfir vestari akreinar Lækjargötu og í veg fyrir lyftarann.
Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa frá því í október í fyrra kom fram að maðurinn hefði verið óhæfur til aksturs vegna áhrifa örvandi efna. Það hefði verið meginorsök slyssins.
Blóðrannsókn á ökumanni lyftarans leiddi í ljós slævandi lyf í lækningalegum skammti. Í leiðbeiningum lyfsins sagði að ekki mætti aka eða stjórna vélum þegar það væri notað þar sem það gæti skert athygli og viðbragðsflýti.
Á meðal annarra orsaka slyssins sem rannsóknarnefndin nefndi var að gafflar lyftarans lyftust hratt upp að framan rétt fyrir áreksturinn. Nefndin ályktaði að ökumaður lyftarans hefði óafvitandi ýtt stýripinna bómunnar þannig að gafflarnir lyftust upp fyrir og í árekstrinum.
Þá átti lyftarinn ekki að vera í akstri í almennri umferð heldur fluttur á milli vinnustaða með öðrum hætti. Eins hafði það áhrif að strætisvagninn birgði ökumanni sendibílsins sýn gagnvart lyftaranum og útsýni ökumanns lyftarans að Vonarstræti var líklega einnig skert.