„Við erum þá að leggja til sex mánaða málshöfðunarfrest vegna ákvörðunar ráðherra um eignarnám og að það verði bara almennt mælt fyrir um flýtimeðferð slíkra mála fyrir dómstólum vegna þess hversu miklir hagsmunir eru í húfi,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra í samtali við fréttastofu.
Hann bætir við að deila við örfáa landeigendur um eitt flutningsmastur eða stuttan kafla á langri leið geti tafið framkvæmd um mörg ár. Í slíkum málum þurfi að geta þess að almannahagsmunir gangi fyrir.
Framkvæmdir gætu hafist áður en bætur liggja fyrir
Ráðherra hefur áður boðað heimild til að hefja framkvæmdir áður en endanlegar bætur fyrir eignarnám liggja fyrir. Í frumvarpsdrögunum kemur fram að ráðherra geti veitt heimildina ef ágreiningurinn snýst einvörðungu um upphæð bóta. Heimildin gæti líka átt við í brýnum tilvikum, þar á meðal ef raforkuöryggi er ógnað. Landeigendur ættu þó áfram rétt á fullum bótum og gætu krafist tryggingar fyrir greiðslunni.
Jóhann Páll telur að þessar breytingar geti flýtt framkvæmdum um einhver ár án þess að hróflað sé við stjórnarskrárvörðum eignarréttindum.
„Þetta er náttúrulega enn eitt skrefið sem við erum að taka til þess að einfalda regluverk og liðka fyrir orkuöflun og atvinnuuppbyggingu um allt land,“ segir Jóhann Páll.
Dreifbýli og brothættar byggðir finni mest fyrir takmörkunum á raforkuflutningi.
„Við erum beinlínis með rannsóknir sem sýna okkur að laun hækka markvert hægar í þeim sveitarfélögum þar sem aðgengi að raforku er ófullnægjandi.“
Hærri mörk í rammaáætlun
Þá er lagt til að viðmið fyrir hvaða raforkuvirkjanir fara í rammaáætlun hækki úr 10 í 25 megavött en kröfur um umhverfismat, skipulag og leyfi gildi áfram.
Raforkueftirlitið fengi jafnframt auknar heimildir til að fylgja eftir framkvæmdum á áætlun Landsnets. Hafi krafa um að hefja tiltekið verk ekki borið árangur innan þriggja mánaða gæti eftirlitið í ákveðnum tilvikum boðið verkið út.
Jóhann Páll segir sams konar ákvæði víða í nágrannalöndum Íslands en með þeim verði settir skýrir varnaglar í lögum til að tryggja að áætlanir um uppbyggingu flutningskerfisins gangi eftir.