Þá verður greint frá næstu skrefum í starfsemi Bláa lónsins, en ekki var talin þörf að setja söluhömlur á stærstu kaupendur í hlutafjárútboði fyrirtækisins sem nú stendur yfir. Framundan er gríðarleg uppbygging félagsins í Þjórsárdal en um er að ræða stærsta fjárfestingaverkefni sem ráðist hefur verið í í íslenskri ferðaþjónustu. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, er nýr viðmælandi Elísabetar Ingu fréttamanns í Sætinu.
Umhverfisráðherra vill að deilur um eignarnám vegna raforkuframkvæmda fari að jafnaði í flýtimeðferð fyrir dómstólum. Markmiðið er að útkljá þær á innan við ári. Ráðherra telur að breytingarnar geti flýtt framkvæmdum um nokkur ár. Fjallað verður um málið í fréttatímanum.
Einnig verður litið til veðurs og umferðar, en tafir vegna malbikunarframkvæmda hafa gert ökumönnum lífið leitt í höfuðborginni. Fyrsti snjórinn féll þar í morgun en búast má við snjókomu og skafrenningi fyrir vestan og norðan eftir hádegi á morgun þegar gular og síðar appelsínugular veðurviðvaranir taka gildi með líklegri ófærð.
Félag íslenskra atvinnuflugmanna FÍA hefur samþykkt ótímabundnar verkfallsaðgerðir sem munu að óbreyttu hefjast 20. nóvember næstkomandi. Var verkfallið samþykkt með miklum meirihluta atkvæða en það takmarkast við leiguflug félagsins. Verkfallið mun hafa áhrif á leiguflug fyrir þriðja aðila þar sem Icelandair selur ekki í sæti vélarinnar, en áhrifa mun ekki gæta hér á landi.
Fjölbreyttur hádegisfréttatími og þéttur sportpakki á Bylgjunni á slaginu tólf. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson.