Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar Klöru sem lést árið 2024 í kjölfar fólskulegrar árásar á Menningarnótt, segist ekki lengur vera reiður út í banamann dóttur sinnar en hann hefur þó ekki fyrirgefið honum. Þetta kom fram í Segðu mér á Rás 1 í morgun.Þinghald í málinu var lokað og Birgi var því ekki heimilt að vera viðstaddur þegar banamaðurinn svaraði til saka. Birgi þótti þó mikilvægt að fá að vita öll smáatriði málsins svo lögmaður hans fékk það í gegn að Birgir fengi að horfa á upptökur í þinghúsinu.
Faðir Bryndísar Klöru sendi banamanni hennar skilaboð á meðan á réttarhöldunum stóð