Húsið stendur við Flatbush-breiðstræti og var þriggja hæða. Það hrundi um klukkan 16 að staðartíma í gær og féllu rústir þess ofan í stóra holu við hliðina þar sem byggingarframkvæmdir voru í gangi.
Í tilkynningu slökkviliðs New York-borgar segir að sex hafi fundist látnir og af þeim nítján sem fundist hafa særðir eru fjórir í lífshættu. Fimm til viðbótar eru alvarlega særðir og tíu voru fluttir á sjúkrahús með alvarleg meiðsli.
Tugir hafa safnast saman á vettvangi og bíða þar eftir fregnum af ástvinum. Ekki er ljóst hversu margir voru í byggingunni þegar hún hrundi en viðbragðsaðilar eru enn að störfum á vettvangi og vonast til að finna fleiri á lífi í rústunum.
Byggingaframkvæmdir voru í gangi á næstu lóð og er mögulegt að þær gætu hafa haft áhrif en byggingareftirlit borgarinnar hafði á mánuðunum á undan gert fjölda athugasemda vegna framkvæmdanna og meðal annars nefnt að varnir fyrir nærliggjandi hús hafi vantað.
Húsið sem hrundi var byggt árið 1930 og þar voru fjórar íbúðir auk atvinnurýmis.
Í fréttavakt CNN kemur fram að stormur sé væntanlegur í borginni. Þar fer líklega að rigna og einnig gæti farið að blása duglega seinni partinn að bandarískum tíma. Hafa menn áhyggjur af því að veðrið gæti haft áhrif á störf viðbragðsaðila.