Samkvæmt gula miðlinum Page Six þá höfðaði Dinora Carolina Cabria Amaya málsóknina fyrir hæstarétti Los Angeles þann 5. nóvember síðastliðinn.
Samkvæmt dómsskjölum sem miðillinn hefur undir höndunum sakar hún Jenner og ýmsa starfsmenn hennar um mismunun, óréttmæta uppsögn og ýmis brot á vinnuréttarlöggjöf.
Amaya segist hafa byrjað að vinna fyrir Jenner í mars 2025, fengið greidda fjörutíu dali (tæpar fimm þúsund krónur) á klukkutíma í seðlum og unnið sex daga vinnuviku. Henni hafi hins vegar verið reglulega neitað um yfirvinnukaup, verið neydd til að vinna langa vinnudaga og þurft að ferðast milli fasteigna Jenner en ekki fengið greitt fyrir ferðatímann eða kostnaðinn.
Lokuð inni í skáp og bitin af hundi
Amaya lýsir einu atviki þar sem yfirmaður hennar, Laura Dooley, hafi skipað henni að fara inn í skáp Jenner með lykilorði en lokast þar inni í „meira en klukkutíma“. Amaya segist hafa hringt skelfingu lostin í Dooley og beðið hana um hjálp en Dooley „hlegið að henni og hæðst“ að vandræðum hennar.
„Það er enginn í húsinu sem getur hleypt þér út og ég get ekki látið neinn annan fá lykilorðið, þú verður bara að bíða,“ hafi Dooley sagt við hana. Amaya hafi því verið skilin eftir í skápnum þar til henni var á endanum hleypt út.
Jafnframt segist Amaya hafa lent í vinnuslysi í september 2025 þegar „ótryggur brúsi af piparúða“ sprautaði piparúða í augu hennar og andlit á meðan hún var að þrífa skúffu í þvottaherbergi. Eftir slysið hafi hún þjáðst af „þokukenndri sjón, bruna, kláða, þurrki, pirringi og stöðugri sand-legri tilfinningu“.
Ástandið versnaði mánuði eftir það þegar Amaya segist hafa verið bitin af hundi á meðan hún var að þrífa hundahús á einum af eignum Jenner. Hún hafi tilkynnt áverkana en ekki fengið neina aðstoð og þurft að kaupa sér sjálf lyf vegna bitsins. Þá hafi henni verið fyrirskipað að yfirgefa herbergi eða halda sig úr augsýn Jenner því athafnakonan hafi ekki viljað sjá til hennar.
Veki upp spurningar um framkomu auðugra í garð starfsfólks
Á endanum segist Amaya hafa verið rekin þann 6. febrúar skömmu eftir að hafa spurst fyrir um hvers vegna annar starfsmaður fékk bensínpeninga en ekki hún. Lögmaður konunnar, Della Shaker, sagði í yfirlýsingu að ásakanirnar veki spurningar um framkomu auðugra einstaklinga í garð starfsmanna sinna.
„Þetta mál vekur upp stærri spurningu: Hversu margir starfsmenn eru hræddir við að tilkynna ólögmæta framkomu því þeir telja vinnuveitendur sína of valdamikla til að bjóða þeim byrginn?“ sagði Shaker.
„Sannleikurinn ætti aldrei að vera grafinn undir auði, ótta eða þögn. Enginn ætti að óttast það að segja sannleikann.“
Lögmaður Jenner, Michael Rhodes, tjáði sig einnig um lögsóknina í yfirlýsingu. „Þetta síðasta mál hefur verið höfðað af sama lögfræðingnum og hefur áður höfðað mál fyrir hönd fyrrverandi starfsmanna Kyliear. Það er ljóst að þessi lögfræðingur vill vekja umtal til að reyna að afla sér óréttmæts penings,“ sagði hann.
Þrír aðrir fyrrverandi starfsmenn lögsótt Jenner
Þetta er í fjórða sinn á þessu ári sem fyrrverandi heimilishjálp Jenner höfðar mál gegn henni eða fyrirtækjum hennar. Angelica Hernandez Vasquez höfðaði mál gegn Jenner og fyrirtækjum hennar þann 17. apríl síðastliðinn vegna áreitni og mismununar.
„Við munum verjast þessum tilhæfulausu ásökunum kröftuglega og hlökkum til að segja okkar hlið á sögunni,“ sagði Rhodes um málsóknirnar.
Önnur heimilishjálp, Juana Delgado Soto, höfðaði mál gegn Jenner og fyrirtækjum hennar þann 29. apríl og sakaði þau um mismunun, áreitni og refsiaðgerðir. Hún sagði að sér hefði verið meinað að horfa á eða brosa til Jenner og hún hafi verið neydd til að fela sig inni á baðherbergi eða í bílskúrnum í marga klukkutíma á meðan raunveruleikastjarnan var heima.
Þá höfðaði nafnlaus kokkur mál gegn Jenner og nokkrum starfsmönnum hennar og sagðist hafa mætt mismunun vegna óléttu sinnar og hlotið ólögmæta uppsögn. Konan segist hafa orðið fyrir fósturláti eftir að hafa þurft að vinna líkamlega erfiðar vaktir þrátt fyrir að fyrir lægi að þetta væri áhættumeðganga. Hún hafi síðan mátt þola illa meðferð í kjölfar fósturlátsins áður en henni var sagt upp.
Málið hefur verið til meðferðar hjá dómstólum, lögfræðiteymi Jenner hefur beðið dómara um að konan gefi upp nafn sitt og verður sú beiðni tekin fyrir í janúar á næsta ári.
Shaker er lögfræðingur allra kvennanna og eru sömu fyrirtækin og yfirmennirnir verjendur í málunum fjórum. Ekki er búið að dæma í neinum málanna.