Ellefu mánaða drengur fannst á lífi eftir að hafa verið grafinn í jörðu inni í hundabúri í skóglendi í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum.Drengsins hafði verið saknað í um sólarhring og telur lögregla að hann hafi verið neðanjarðar stóran hluta þess tíma. Faðir barnsins er grunaður um aðild að hvarfi þess, að því er fram kemur í umfjöllun NBC News.Drengurinn, sem heitir Koah Sharpe, fannst síðdegis í gær eftir umfangsmikla leit sem nærri hundrað lögreglumenn, slökkviliðsmenn og aðrir viðbragðsaðilar tóku þátt í.
Ellefu mánaða drengur fannst grafinn lifandi – Ótrúlegt að hann hafi lifað af