Danska útgáfa Faðirvorsins gæti tekið breytingum á næsta ári ef prufuþýðing danska biblíufélagsins vinnur hylli.
Breytingarnar yrðu smávægilegar og til þess fallnar að gera faðirvorið nútímalegra. Vonin er sú að með uppfærðu Faðirvori eigi yngra fólk auðveldara með að skilja bænina.
Sem dæmi tæki fyrsta línan málfarslegum breytingum.
Vor Fader, du som er i himlene!
verður að:
Vores far, du som er i himlen!
Orðið himlen er í eintölu og mun nær eðlilegri máltilfinningu flestra Dana á meðan fleirtalan himlene er hátíðlegri og finnst óvíða annars staðar en í Faðirvorinu og álíka guðfræðilegum texta. Ávarpsliðurinn Vor breytist einnig í hið síður hátíðlegra Vores.
Að sama skapi segjum við Íslendingar: Faðir vor, þú sem ert á himnum og notum þar fleirtöluna. Samskonar íslensk uppfærsla og prófuð verður í Danmörku gæti útlagst svona: Faðir okkar, þú sem ert á himninum.
„Þegar við uppfærum Faðirvorið erum við að krukka í orðum sem fólk hefur notað til tilbeiðslu alla sína ævi. Því fylgir ábyrgð. Á sama tíma verða komandi kynslóðir einnig að geta skilið um hvað bænir þeirra fjalla,“ hefur danska ríkisútvarpið eftir Johannes Baun, formanni danska biblíufélagsins.
Faðirvorið var síðast uppfært í Danmörku árið 1992. Breytingin í ár er hluti af nýrri danskri biblíuþýðingu sem gefin verður út árið 2036 þegar 500 ár verða liðin frá siðbótinni þar í landi.
Sumt breytist þó ekki. Danska faðirvorið kemur áfram til með að enda á:
For dit er riget og magten og æren i evighed. Amen!