Með þessu eru rússneskir ráðamenn taldir vilja teikna upp þá mynd að varnarlínur Úkraínumanna séu að hruni komnar og að það sé einungis tímaspursmál hvenær Rússar beri sigur úr býtum.
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði frá því seint í gærkvöldi að hann hefði rætt við sendinefnd sína í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, þar sem viðræður eiga sér stað.
Sjá einnig: Úkraínumenn og Rússar funda í Abu Dhabi
Forsetinn sagði að Rússarnir á fundinum hefðu haldið því fram að þeir hefðu tekið um helming þess landsvæðis sem Úkraínumenn stjórna enn á Donbas-svæðinu svokallaða. Þetta hafi verið herforingjar og menn úr rússneska leyniþjónustusamfélaginu og þeim hafi verið alvara.
Samkvæmt Selenskí sögðust Úkraínumenn ekki skilja hvernig Rússar gætu haldið þessu fram. Það væri nóg til af myndefni og öðrum sönnunum sem staðfestu að Rússar hefðu ekki tekið það svæði sem þeir héldu fram að þeir hefðu tekið.
„Þetta er vandamálið. Pútín býr í öðrum heimi. Hann mun auðvitað segja Bandaríkjamönnum að hann þurfi einn eða tvo mánuði til að klára hernám austurhluta Úkraínu,“ sagði Selenskí í samtali við blaðamenn í Danmörku í gær.
„Ég get líka teiknað mynd fyrir hann sem sýnir að ég hafi hernumið allt Rússland en það er ekki satt.“
Selenskí sagði það hafa verið jákvætt að Bandaríkjamenn, sem koma að viðræðunum, hefðu staðfest orð úkraínsku sendinefndarinnar um stöðu víglínunnar.
Þá sagði hann þetta sýna fram á að halda þyrfti leiðtogafund, sem gæti verið ræddur í Abu Dhabi í dag.
When I received the second report from our negotiating team after their meetings in Abu Dhabi, they told me that the Russians think and say they have already occupied half of Donbas, which remains under our control. These were military officers, Russian intelligence, and they were serious about it. Our team told them, “We don’t know how you can even say such things. We have video footage, images, other things proving that these areas are under our control.” This is the problem. Putin lives in a different reality. Of course, he will be sharing with the Americans that he needs one or two months to fully occupy the east of Ukraine. I can draw a picture for him too where I fully occupy Russia. But it’s not true. What was good is that the American side confirmed the Ukrainian assessment of what is happening on the battlefield. This is why we need to sit and speak at the level of leaders. There are a lot of questions. Like we spoke about the city of Kherson that is divided by the river today. The Russians control one bank, we control the other. But people want to live united on both banks. This is a Ukrainian city. Such issues are sensitive, but we have to speak about them. I think that tomorrow the teams will discuss the possibility of meeting at the level of leaders. I'm not sure that Russia is ready, but we will raise this topic. From a conversation with journalists.
— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) November 10, 2026
Hæg framsókn og mikið mannfall
Sókn Rússa hefur gengið verulega hægt á undanförnum mánuðum og eru Rússar á sama tíma taldir hafa orðið fyrir gífurlegu mannfalli.
Þar sem þeir hafa sótt fram, mjög hægt, er á Donbas-svæðinu, sem þeir hafa um nokkurt skeið lagt mjög mikla áherslu á. Þetta svæði er myndað af Lúhansk- og Dónetskhéruðum. Rússar stjórna mestöllu Lúhansk og stærstum hluta Dónetsk en ekki svæði sem Úkraínumenn kalla „virkisbeltið“.
Það svæði er um fimmtungur Dónetsk og inniheldur nokkrar mjög víggirtar borgir.
Rússum hefur ítrekað reynst erfitt að taka úkraínskar borgir án gífurlegrar fyrirhafnar og mikils mannfalls og binda Úkraínumenn vonir við að geta stöðvað Rússa á þessu virkisbelti.
Helstu borgirnar í virkisbeltinu eru Kostíantínívka, Kramatorsk og Slóvíansk.
Greinendur Black Bird Group, sem fylgjast náið með átökunum, hafa sagt að í september hafi Rússar tapað 190 ferkílómetrum í Úkraínu. Í október náðu þeir 21 ferkílómetra.
Over the month of October, the Russian net gains in Ukraine were 21 km². The frontline stayed relatively stable after the culmination of Ukraine's operation Vivaldi. Ukraine has continued to advance in Western Donetsk, while Russia has focused on the Dobropillya axis. 1/ https://t.co/lwjFencLGP
— Black Bird Group (@Black_BirdGroup) November 3, 2026
Birta breytt myndbönd af meintum landvinningum
Financial Times sagði frá því á dögunum að rússneskar hersveitir og rússneskir herbloggarar hefðu að undanförnu birt aragrúa myndbanda sem ættu að sýna umfangsmikla framsókn Rússa á víglínunni en búið væri að eiga við með gervigreind og öðrum stafrænum hætti.
Eitt slíkt myndband var birt af varnarmálaráðuneyti Rússlands og átti það að sýna að Rússar hefðu hernumið bæinn Dobropillia í Dónetsk-héraði.
Á því má sjá rússneskan hermann veifa rússneskum fána sem tók skyndilegum breytingum en sérfræðingar sögðu að því myndbandi hefði verið breytt með gervigreind.
Í grein FT var einnig vísað í rannsókn bandarísku hugveitunnar Institute for the study of war sem birt var í september. Þá fundu greinendur að minnsta kosti 35 myndbönd frá Rússum sem birt voru í sumar og hafði verið breytt með gervigreind eða öðrum hætti, til að ýkja framsókn Rússa í Úkraínu.
SPECIAL REPORT: Russian sources are increasingly relying on AI-generated and AI-altered videos to assert territorial control over areas of Ukraine that Russian forces have not, in fact, seized. Russian sources are intentionally exaggerating territorial gains to portray Russian forces as advancing and having the initiative along the frontline and to falsely portray the Ukrainian line as collapsing across the theater. 🧵(1/4) Russian soldiers had been attempting to exploit OSINT mapping methodologies by having soldiers actually infiltrate areas and ostentatiously raise flags since at least September 2025. Russian sources are now evolving this information tactic by leveraging AI-altered footage to insert Russian soldiers with flags into geolocated videos to make such claims in places into which soldiers have not infiltrated.
— Institute for the Study of War (@TheStudyofWar) September 10, 2026
Í samtali við FT sagði einn af rannsakendum ISW að myndböndin væru liður í stærri áróðursherferð sem ætlað væri að sýna fram á að sigur Rússa væri óhjákvæmilegur, að varnarlínur Úkraínumanna væru að hruni komnar og að Vesturlönd ættu að gefa Úkraínu upp á bátinn.
Greinendur ISW beindu á dögunum athygli að því að tiltölulega vel þekktur rússneskur herbloggari hefði vakið athygli á því að yfirlýsingum varnarmálaráðuneytis Rússlands um „frelsaðar“ byggðir í Úkraínu hefði fækkað töluvert.
Sá taldi mögulegt að ráðuneytið hefði endurskoðað yfirlýsingar um landvinninga í Úkraínu, eftir að hafa fengið ósannar skýrslur frá framlínustjórnendum.