Í dag er dagur einhleypra, eða „Singles day“, sem til margra ára hefur verið einn stærsti dagurinn í netverslun á heimsvísu. Hér á landi bjóða margar verslanir afslætti á þessum degi en hann er upphafið að tilboðsvertðinni í nóvember sem nær hámarki með svörtum föstudegi og stafrænum mánudegi síðar í mánuðinum.
Um helgina sagði Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, neytendur byrji jólaverslunina snemma og að obbinn af kaupmönnum sé vel undirbúinn.
Neikvæður fylgifiskur þessara daga eru auknar líkur á netsvikum. Anton Már Egilsson forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, segir að netsvik aukist alltaf í kringum þessa daga.
„Þegar það verður einhver pressa á það að nýta afslætti eða gera eitthvað sem liggur á, þá er verið að reyna að svíkja fólk í miklu meiri mæli heldur en kannski á venjulegum tímum,“ sagði Anton í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Eru einhver ákveðin svik sem eru meira áberandi en önnur?
„Ef eitthvað tilboð lítur út fyrir að vera of gott til að vera satt þá eru það líklega svik. Ég held að það sé almenna reglan kannski og hugsa tvisvar eða þrisvar áður en þú stekkur á eitthvað,“ bætir Anton við.
„Skaðinn er þá aldrei meiri en það sem er á kortinu“
Þá sé töluvert um að verið sé að reyna svik í kringum sendingar með pósti eða öðrum dreifileiðum.
„Það er mikið verið að reyna að stökkva inn í sem milliliður eiga við greiðsluleiðir. Eða fá þig til að borga eitthvað eftir öðrum leiðum heldur en þú samþykktir í upphafi.“
Einnig sé gervigreindin orðin betri í íslensku sem auðveldi svikurum að setja upp heimasíður líkar þekktum fyrirtækjasíðum. Anton hvetur neytendur til að vera með sérstakt kort fyrir netinnkaup.
„Það er þannig séð einfalt að fá sér bara kort þar sem þú getur stýrt hver inneignin er og verið þá bara með netkaupakort með minniháttar upphæðum og skaðinn er þá lítill. Þú ert þá í rauninni að færa inneign inn á fyrirframgreitt kort og skaðinn er þá aldrei meiri en það sem er á kortinu á hverjum tíma,“ segir Anton Már Egilsson forstjóri Syndis.