Ekkja Keach, Malgosia Tomassi, greindi frá andláti leikarans í tilkynningu. Keach lést þriðjudaginn 10. nóvember á heimili sínu í Magdalenka í Póllandi eftir „langa og erfiða baráttu við alvarlega hjartveiki og hjartabilun“.
„Stacy yfirgaf þennan heim friðsællega,“ sagði hún í tilkynningunni. „Hann barðist svo lengi með ótrúlegu hugrekki, staðfestu og styrk. Hann var sannur stríðsmaður og tókst á við veikindi sín af sama merkilega hug og seiglu sem einkenndi líf hans.“
Keach fæddist 2. júní 1941 í Savannah í Georgíu, sonur leikstejórans Stacy Keach eldri og leikkonunnar Mary Cain, en ólst að mestu upp í Los Angeles. Hann hóf leiklistarferilinn árið 1964 þegar hann lék í Hamlet í Central Park og lék í fjölmörgum sviðsuppsetningum út sjöunda áratuginn.
Keach var talinn einn öflugasti Shakespeare-leikari sinnar kynslóðar og lýsti gagnrýnandinn Clive Barnes því yfir að Keach væri „einn besti Hamlet samtímans“. Keach færði sig yfir í sjónvarp og kvikmyndir á seinni hluta sjöunda áratugarins og lék þar í Brewster McCloud (1970) eftir Robert Altman og frumraun Ridley Scott, The Duellists (1977).
Keach færði sig meira yfir í sjónvarp upp úr níunda áratugnum, meðal annars í hinum vinsælu spæjaraþáttum Mike Hammer (1984-87) á CBS þar sem hann fór með samnefnt hlutverk. Gera þurfti hlé á þáttunum þegar Keach var handtekinn á Heathrow-flugvelli fyrir vörslu kókaíns og sat í kjölfarið í fangelsi í níu mánuði. Hann sneri aftur í framhaldsseríunni The New Mike Hammer (1984-89) og fór svo með hlutverk spæjarans í þremur sjónvarpsmyndum og þriðju seríunni Mike Hammer: Private Eye (1997-98).
Næstu áratugina lék Keach í fjölmörgum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Af kvikmyndum hans má nefna Escape from LA (1996), American History X (1998), The Bourne Legacy (2012) og Nebraska (2013). Meðal fjölmargra sjónvarpsþáttasería sem hann lék í má helst nefna Prison Break (2005-07), Man With a Plan (2017-20) og The Blacklist (2019-23).
Stacy lætur eftir sig eiginkonu sína, börn þeirra tvö, Karolinu og Shannon Keach, og barnabörn.