Fjögur ungmenni, á aldrinum 16 til 19 ára, létust í hörmulegu umferðarslysi í Þýskalandi seint í gærkvöldi þegar Audi-bifreið þeirra hafnaði á tré. Bíllinn gjöreyðilagðist við áreksturinn og lögregla telur að honum hafi verið ekið langt yfir leyfilegum hámarkshraða.Slysið varð í þorpinu Weslarn, skammt frá Bad Sassendorf í sambandslandinu Norðurrín-Vestfalíu. Þýski fjölmiðillinn Bild greinir frá málinu.
Fjögur ungmenni létust í skelfilegu bílslysi