Myndbandið úr búinu var birt á föstudag en þar sáust svín með sár og dauðir gríslingar á búi Stjörnugríss á Kjalarnesi.
„Þetta er náttúrulega óhugnanleg mynd sem þarna er dregin upp. Og auðvitað ef að þetta er staðan þá er þetta óásættanlegt,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í samtali við fréttastofu.
Stjörnugrís brást við myndbandinu og sagði það gefa villandi mynd af starfsemi fyrirtækisins. Ástand dýranna var rekið til fyrra innbrots í búið en Stjörnugrís sagði Matvælastofnun hafa gert engar alvarlegar athugasemdir í eftirliti 15. október síðastliðinn.
Matvælastofnun hefur nú myndbandið til rannsóknar og kannar hvort innbrotið hafi haft áhrif á ástand dýranna. Ráðherra segir ástæðu til að kanna málið nánar verði niðurstaða rannsóknarinnar sú að brotalamir hafi fundist í aðbúnaði dýranna.
Einstök svínabú fengu frest til ársloka 2027 frá Matvælastofnun til að uppfylla tilteknar kröfur um aðbúnað. Kröfurnar eru taldar snúa meðal annars að stærð stía þar sem gyltur gjóta.
Skilyrði fyrir frestinum voru á þá leið að bændur þurftu að sýna fram á að þeir hefðu gripið til ráðstafana en tafist af ástæðum sem þeir báru ekki ábyrgð á. Hanna Katrín segir í samtal
Til að fá frest þurftu bændur að sýna fram á að þeir hefðu gripið til ráðstafana en tafist af ástæðum sem þeir báru ekki ábyrgð á. Hanna Katrín segir að fresturinn hafi verið framlengdur nokkrum sinnum og að bændur hafi fengið styrk frá ríkinu til að ráðast í úrbætur. Matvælastofnun sé með þessi málefni til skoðunar og beðið sé eftir niðurstöðu hennar áður en metið verður hvort brugðist verði frekar við.