Á fundinum verður fjallað um stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði og þær hindranir sem mæta því á leið frá námi til fjárhagslegs sjálfstæðis.
Á fundinum verður kynnt nýtt Hagkorn BHM, „Hver kemst inn og hver bíður? Ungt fólk á húsnæðismarkaði“ þar sem sjónum er sérstaklega beint að stöðu ungs fólks og þeim hindrunum sem mæta því á leiðinni frá námi til fjárhagslegs sjálfstæðis.
Fundurinn hefst kl. 12:00 og verður í beinu streymi.
DAGSKRÁ
11:30 – Húsið opnar
Boðið verður upp á léttan hádegismat.
12:00 – Opnunarávarp
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
– Hagkorn BHM: Hver kemst inn og hver bíður? Ungt fólk á húsnæðismarkaði
Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingar BHM
– Hver er staða ungs fólks á húsnæðismarkaði?
Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS
Pallborð: Hvernig getum við stytt leiðina til sjálfstæðis?
Ragnar Þór Ingólfsson, félags – og húsnæðismálaráðherra
Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti LÍS
Sóllilja Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Vörðu
Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir.
13:30 – Samantekt og fundarslit