„Þetta byrjaði sem persónulegar barnabækur en nú er einnig hægt að kaupa bækur fyrir fullorðna, mömmur og pabba, afa og ömmur með titla eins og „besta mamma í heimi og besti afi í heimi. Við erum líka með bækur fyrir fótboltaáhugafólk sem njóta mikilla vinsælda. Núna geturðu í rauninni klárað jólagjafirnar fyrir litla frænda, pabba þinn, afa og ömmu allt á sama stað,“ útskýrir Sölvi Víðisson en hann stofnaði Ævintýri.is ásamt frænda sínum, Björgvini Smára Halldórssyni.
Hvernig gengur þetta fyrir sig?
„Kaupandinn velur sögu, setur inn nafn sögupersónunnar og getur í barnabókunum valið útlit, eins og hárgreiðslu og húðlit. Það er líka hægt að skrifa persónulega kveðju sem birtist í bókinni, sem gerir bækurnar enn persónulegri jólagjöf.“
Frá fyrstu orðunum að stórum ævintýrum
Sögurnar höfða til ólíkra aldurshópa og áhugamála. Á vefnum má meðal annars finna bækur þar sem barnið lærir fyrstu orðin og litina, fer í sveitina, kynnist risaeðlum, verður forseti eða bjargar jólunum. Þar eru líka leitarbækur og ævintýri þar sem barnið sjálft er í aðalhlutverki.
Á bak við hverja bók liggur töluverð vinna.
„Allar sögurnar eru skrifaðar af okkur og myndirnar teiknaðar af teiknaranum okkar, við notum enga gervigreind við gerð bókanna,“ segir Sölvi. „Síðan sér forritunin um að rétta útgáfan af persónunni birtist í bókinni. Nú eru komnar sextán barnabækur og svo átta bækur fyrir fullorðna.“
Bók um mömmu, pabba, ömmu eða afa
Persónulegu fullorðinsbækurnar segja sögu viðtakandans með öðrum hætti. Þar má meðal annars velja bækur fyrir mömmu, pabba, ömmu og afa og tengja upplýsingar úr lífi þeirra við það sem var að gerast í heiminum á þeirra æviskeiði.
„Þar er sett inn nafn, fæðingardagur og hvað þau eiga mörg börn til dæmis. Út frá því og gagnagrunni sem við höfum tekið saman, verður til bók sem rifjar upp tímann þegar viðtakandinn fæddist og gefur mynd af því hvernig var að alast upp á þeim árum. Aftast er hægt að velja tíu spurningar handa viðtakanda bókarinnar eins og hvert var fyrsta starfið þitt, hverju ertu stoltastur/stoltust af í lífinu og fleira,“ útskýrir Sölvi
Saga uppáhaldsliðsins tengd eigin ævi
Fótboltabækurnar hafa einnig notið vinsælda. Þar er saga félagsins tengd við ævi þess sem fær bókina, allt frá fæðingardegi hans.
„Ef pabbi þinn heldur til dæmis með Manchester United fær hann sögu félagsins frá því hann fæddist, með persónulegum tölfræðiupplýsingum. Eins og hversu mörg mörk hafa þeir skorað síðan hann fæddist, hve margir leikir spilaðir á afmælisdaginn hans og fleira.“
Frá því að ævintýri.is var fyrst sett á laggirnar árið 2022 hefur úrvalið vaxið jafnt og þétt og eru núna 24 mismunandi bækur í boði. Fyrir jólin er ráð að huga tímanlega að pöntuninni enda hver bók framleidd sérstaklega.