Karlmaður, sem grunaður er um fjölda alvarlegra brota á þessu ári, skal sæta gæsluvarðhaldi til 2. desember næstkomandi samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Landsréttur hefur vísað frá kæru mannsins vegna annmarka á henni.Maðurinn er grunaður um aðild að vopnuðu ráni gegn dreng í Reykjavík í síðustu viku. Þá er hann til rannsóknar vegna fjölda annarra brota, meðal annars stórfelldra líkamsárása, rána, frelsissviptingar og hótana.
Héldu byssu að andliti drengs í Reykjavík: Óhugnanleg brotahrina eins hinna grunuðu