Flugritinn, sem gjarnan er kallaður „svarti kassinn“, fannst þar sem flugvélin brotlenti, samkvæmt tilkynningu frá Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum (NTSB). Hann er nú kominn á rannsóknarstofu í Washington DC en ekki fylgja upplýsingar um það hvort hann sé skemmdur.
Flugvélin féll til jarðar í íbúðarhverfi en mikil mildi þykir að enginn hafi látið lífið á jörðu niðri. Rannsókn á slysstað er lokið, samkvæmt NTSB.
Skömmu áður en flugvélin brotlenti sagði aðstoðarflugmaður hennar við flugumferðarstjóra að þau hefðu lent í ókyrrð og að ísing væri að myndast á flugvélinni. Þau þyrftu að hækka flugið úr 35 þúsund fetum í 37 þúsund fet.
Skömmu síðar lýsti flugmaðurinn yfir neyðarástandi og sagði að þau væru að lækka flugið mjög hratt.
Sjá einnig: „Tíminn er á þrotum“
Á upptökunni heyrðist hin tvítuga Nathalia Filgueiras, aðstoðarflugmaðurinn, segja að þau myndu brotlenda og deyja en þau væru að reyna að beygja flugvélinni. Það síðasta sem hún sagði var að tíminn væri á þrotum.
Stjúpfaðir Filgueiras hefur sagt að um tíu mínútum fyrir slysið hafi hún sent kærasta sínum skilaboð um að hún væri að fljúga í ókyrrð og að glíma við ísingu.
Gæti varpað ljósi á tildrög slyssins
Brotlending flugvélarinnar var fönguð á mynd úr nokkrum sjónarhornum og upptökur af samskiptum aðstoðarflugmannsins við flugumferðarstjóra í aðdraganda slyssins liggja einnig fyrir.
Ef hægt verður að fá gögn og upptökur úr flugritanum gæti það varpað ljósi á hvað flugmennirnir sögðu við hvorn annan þegar þeir börðust við að reyna að halda flugvélinni á lofti. Einnig gæti upptakan varpað ljósi á það af hverju flugmennirnir flugu kringum nokkuð stórt óveður og flugu svo rakleiðis inn í annað minna óveður sem var að myndast.
Sérfræðingur segir í samtali við AP-fréttaveituna að miðað við mynd af flugritanum sem birt var á netinu virðist hann í ágætu ásigkomulagi. Hins vegar þurfi ekki að vera að hann hafi virkað. Sem dæmi nefnir hann að þegar flugriti sjúkraflugvélar sem brotlenti í Philadelphia í fyrra fannst hafi komið í ljós að hann hafi ekki virkað í nokkur ár.
Talsmaður rannsóknarnefndar samgönguslysa vestanhafs sagði í gær að veðrið væri stór liður í rannsókninni á slysinu. Hann sagði von á bráðabirgðaskýrslu eftir um mánuð en rannsóknin myndi líklega taka meira en ár.
Rannsóknir NTSB taka yfirleitt um tólf til átján mánuði. Um fjögur hundruð starfsmenn stofnunarinnar sinna núna rúmlega 1.200 rannsóknum.