Fagnar olíufundi fyrir loftslagsfund
Gestgjafi COP31 um framtíð loftslagsmála mætir á ráðstefnuna, þar sem olía og kol eru lítið til umræðu.
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti heldur í dag til Antalya, þar sem loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP31, fer fram. Hann hefur fagnað því að nýjar olíulindir hafi fundist.
Erdogan er væntanlegur til borgarinnar við Miðjarðarhafið daginn áður en þjóðhöfðingjar og ríkisstjórnarleiðtogar hefja tveggja daga ávarpsdagskrá á árlegri ráðstefnunni. Þar er þrýst á ríki að gera meira til að stemma stigu við loftslagsbreytingum.
Í gær fagnaði Erdogan því að tvær olíulindir hefðu fundist í Gabar-fjalllendinu. Þær gætu geymt 135 milljónir tunna af hráolíu og kallaði hann fundinn „góð tíðindi“.
Olíuvinnsla á suðausturhluta landsins mun fara yfir 100.000 tunnur á dag á síðari helmingi ársins 2027, sagði hann á X.
