Grindvíkingum mun frá og með byrjun næsta árs bjóðast að kaupa aftur fasteignir sem þeir seldu Fasteignafélaginu Þórkötlu í kjölfar náttúruhamfaranna í Grindavík. Kaupverðið verður það sama og Þórkatla greiddi upphaflega fyrir eignirnar og kaupendur fá sérstakan skilarétt í allt að þrjú ár.Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri endurkaupaáætlun Þórkötlu sem kynnt hefur verið. Áætluninni er ætlað að auðvelda Grindvíkingum að snúa aftur heim þrátt fyrir þá óvissu sem enn ríkir vegna eldsumbrota á Reykjanesskaga.
Grindvíkingar geta keypt húsin sín aftur á sama verði – Fá þriggja ára skilarétt