Grindvíkingar fá að kaupa húsin sín til baka á sama verði og þeir seldu
Fasteignafélagið Þórkatla ætlar að hefja sölu fasteigna í Grindavík í byrjun næsta árs. Fyrrverandi eigendur geta keypt húsin sín til baka á sama verði og ríkið greiddi fyrir þau og fengið allt að þriggja ára frest til að ljúka kaupunum. Á þeim tíma geta þeir hætt við kaupin og skilað eignunum.
Fasteignafélagið Þórkatla ætlar að bjóða Grindvíkingum að kaupa fasteignir í bænum á sama verði og félagið greiddi fyrir þær eftir að Grindavík var rýmd vegna eldsumbrotanna á Reykjanesskaga. Þetta kemur fram í nýrri endurkaupaáætlun félagsins.
Þórkatla var stofnuð af ríkinu til að kaupa upp íbúðarhúsnæði í Grindavík og hefur alls keypt 961 fasteign í bænum. Um þrjátíu þeirra eru ónýtar eftir jarðhræringar og eldsumbrot. Félagið situr því á 930 eignum í bænum.
Stefnt er að því að fyrstu kaupsamningarnir verði undirritaðir í byrjun næsta árs. Grindvíkingar fá frest til 31. janúar 2030 til að greiða fasteignirnar að fullu og á þeim tíma geta þeir hætt við kaupin og skilað eignunum aftur til Þórkötlu.
Fimm prósenta útborgun
Kaupendur þurfa að greiða að lágmarki fimm prósent af kaupverði við undirritun samnings. Á næsta ári verður þó hægt að skipta útborguninni í tvennt, greiða tvö prósent við undirritun og …