Breska ríkisútvarpið fjallar um málið.
Talsmaður Skims greindi fjölmiðlum frá því að „fyrir suma hafi jóladagatalið ekki staðist væntingar“ og að fyrirtækið hafi „persónulega haft samband við allar kaupendur“ til að bjóða þeim fulla endurgreiðslu eða inneign hjá fyrirtækinu.
Þessi yfirlýsing fyrirtækisins kemur í kjölfar mikillar gagnrýni og umræðu á samfélasmiðlum um jóladagatalið sem kostar 148 Bandaríkjadali. Í lýsingu á dagatalinu segir að þar sé að finna „tólf daga af skemmtilegum óvæntum glaðningum“ en kaupendur hafa hins vegar flykkst á netið til að hæðast að innihaldinu sem telur meðal annars hárteygjur og spennur.
Kim Kardashian stofnaði Skims árið 2019, ásamt Jens Grede, og hafa gríðarlegar vinsældir þess gert athafnakonuna að milljarðamæringi. Merkið var í fyrra metið á fimm milljarða Bandaríkjadala (rúmlega 600 milljarðar króna).
Meðal þeirra sem fjölluðu um jóladagatalið á samfélagsmiðlum var TikTok-notandinn spicychathouse sem birti myndand af sér að opna dagatalið fyrir tveimur dögum. Búið er að horfa á myndbandið 1,7 milljón sinnum.
Í myndbandinu má sjá konu hlæja að fátæklegum gjöfunum og segja: „Ég hef verið að hlæja að þessum haug af dóti úr jóladagatali Skims í tuttugu mínútur. Þetta er bókstaflega draslið sem kötturinn minn safnar saman úr húsinu mínu“.
Þá hafa nokkrir TikTok-notendur birt myndbönd af sér að tína til drasl úr húsgögnum sínum til að safna saman í jóladagatalið.
Jóladagatöl hinna ýmsu fyrirtækja hafa færst í aukana á síðustu árum. Úrval fyrir börn af leikfanga- og sælgætisjóladagatölum hefur stóraukist en einnig dagatöl fyrir fullorðna, svosem snyrtivöru-, sælkera- og kynlífstækjadagatöl.
Fyrir nokkrum árum fjallaði Vísir um jóladagatal Nýju vínbúðarinnar þar sem aðeins um helmingur bjórsins var jólabjór og dagatalið kostaði tuttugu þúsund krónur en innihélt bjór að andvirði átta þúsund króna.
Til að gefa lesendum betri hugmynd um jóladagatalið frá Kim má sjá innihaldið hér að neðan:
Jóladagatal Skims
- Dagur 1: Lyklakippa með köflóttum bangsa
- Dagur 2: Hárteygjur
- Dagur 3: Hárteygjur
- Dagur 4: Hárspennur með Skims-lógói
- Dagur 5: Mjúkt Skims-jólaskraut
- Dagur 6: Hárspennur með Skims-lógóinu
- Dagur 7: Drapplitað teygjulindi
- Dagur 8: Hárspennur með Skims-lógói
- Dagur 9: Skims-lyklakippa
- Dagur 10: Hárteygjur
- Dagur 11: Skims-lyklakippa
- Dagur 12: Loðin spegla-lyklakippa