Í málflutningi ákæruvaldsins í morgun sagði sækjandi að verið væri að fást við fordæmalaust mál hvað varðaði eðli þess, umfang og alvarleika. Um væri að ræða grafalvarlega og síendurtekna háttsemi og að Íris hefði sýnt einbeittan brotavilja til að fremja brotin og valda brotaþolum sálrænum sársauka.
Brotaviljinn hennar hafi verið ríkur og Íris Helga hafi gengið skipulega til verks. Hún hafi gert sitt besta til að leggja líf fólks í rúst, en á meðal níu brotaþola í málinu eru tvær unglingsstúlkur.
Sækjandi fór síðan yfir brot Írisar Helgu sem hann sagði spanna þriggja ára tímabil. Ákærða hafi verið virk í brotum allan tímann og hvorki dottið til hugar að viðurkenna sök að raunverulegu leyti né biðjast afsökunar. Þvert á móti hafi hún haldið áfram að fara með ósannindi og reynt með vísvitandi hætti að afvegaleiða dómstóla með því að leggja fram fölsuð gögn.
Þessi gögn séu til þess fallin að varpa enn frekari sök á hana sjálfa og að trúverðugleiki Írisar Helgu sé enginn. Með framlagningu falsaðra gagna hafi hún tengt sjálfa sig enn frekar við þau brot sem hún er sökuð um.
Mikilvægt sé að dómstóllinn sendi skilaboð um að háttsemi sem þessi sé litin alvarlegum augum.
Tölvunotkun hafi verið mjög afhjúpandi
Í málflutningi sínum reifaði sækjandi síðan enn frekar alla ákæruliði málsins. Sagði hann að tölvunotkun Írisar, sem rannsökuð var gaumgæfilega, hefði verið mjög afhjúpandi. Hefði hún til dæmis ítrekað skoðað Facebook-síður brotaþola í málinu og þar að auki leitað á netinu eftir upplýsingum um hvernig ætti að eyða Facebook-síðum og skipta á milli reikninga á samfélagsmiðlum.
Þá hafi hún slegið inn leitarorð á borð við stalking [að eltihrella], gaslighting [gaslýsing] og smear campaign [ófrægingarherferð] og því ætti engum að dyljast hvað hún hafi verið að fást við.
Hins vegar hafi Íris reynt að koma sök á hinn ákærða í málinu, sagt að reikningar á samfélagsmiðlum hafi fundist í hans tölvu sem standist enga skoðun.
Á meðan á málflutningi sækjanda stóð sat Íris Helga í sæti sínu í dómsal, skrifaði einstaka sinnum niður á blað og átti orðaskipti við verjanda sinn Helgu Völu Helgadóttur.
Neitun Írisar Helgu stangist á við fyrirliggjandi gögn
Í málflutningi sínum talaði sækjandi einnig um ítrekaðar tilkynningar til barnaverndar þar sem hún sagði brotaþola og sambýliskonu vera að vanrækja sex ára gamalt barn sitt.
Sækjandi sagði sérstaklega ljótt af Írisi Helgu að blanda barni inn í brot sín og að fyrir lægi að falskar tilkynningar hafi verið útbúnar í fartölvu ákærðu.
Meðal annars hafi í samskiptum Írisar við hinn sakborning málsins, sem meðal annars er sakaður um að maka saur á hurðarhúna brotaþola, fundist mynd af tölvuskjá þar sem sjá megi eitt fölsuðu skjalanna.
Fara fram á 5-6 ára fangelsi
Í ljósi þessara brota sem sækjandi segir að gögn málsins sanni að Íris hafi framið, fer ákæruvaldið fram á 5-6 ára dóm sem og að Íris verði dæmd til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Jafnframt kom fram í máli sækjanda að þegar gögn málsins eru lesin gaumgæfilega sé kirstaltært hvernig þau komi heim og saman. Sama mynstur endurtaki sig, notaðar séu keimlíkar aðferðir og efnistök og það eina sem tengi saman brotaþola sé ákærða.
Þá vísaði sækjandi til ákvæðis um refsiþyngingu, meðal annars vegna hegðunar sakbornings að undanförnu. Hún sé til rannsóknar vegna nýrra brota á þessu ári, meðal annars vegna brotaþolum þessa mál.
Einnig sæti Íris Helga nú nálgunarbanni og rafrænu eftirliti vegna atviks í síðustu viku þegar brotaþolar í málinu sögðu hana hafa elt sig heim eftir þriðja dag aðalmeðferðar málsins.