Fasteignafélagið Þórkatla hefur þróað endurkaupaáætlun sem gerir Grindvíkingum kleift að kaupa til baka fasteignir sem ríkið keypti eftir eldgosin í nágrenni bæjarins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að áætlunin sé mikilvægur liður í endurreisn bæjarins. Ekki er um hefðbundin fasteignaviðskipti að ræða heldur framhald björgunaraðgerða.
Grindvíkingar sem vilja flytjast aftur til bæjarins hafa þrjár leiðir til þess frá byrjun árs 2027.
Endurkaup – það er kaupleiga eigna, að taka frá eign – fyrir þau sem vilja bíða átektar og leiga í fjölbýli – leiga á markaðskjörum.
Endurkaupin ganga fyrir sig á svipaðan hátt og leiga með kauprétti, samkvæmt tilkynningu. Í upphafi er greidd upphafsgreiðsla, eins konar trygging, og eftir það mánaðarlegar leigugreiðslur.
Áætlunin stendur þeim til boða sem áttu lögheimili í Grindavík og höfðu náð 18 ára aldri 10. nóvember 2023, þegar bærinn var rýmdur. Það fólk getur keypt fasteignir úr eignasafni Þórkötlu.
Skilaréttur til þriggja ára
„Til að mæta þeirri óvissu sem enn ríkir í Grindavík býður félagið kaupendum upp á sérstakan skilarétt í allt að þrjú ár, þar sem kaupendur geta skilað eigninni án skilyrða og fengið upphaflega kaupsamningsgreiðslu endurgreidda.
Þá verður á árinu 2027 boðið upp á svokallaða „mýkri aðlögun“ að búsetu í bænum með uppskiptingu á upphafsgreiðslu, kaupleigulausu tímabili og lægri kaupleigu,“ segir í tilkynningu.
Þórkatla kveðst leggja ríka áherslu á að þrýsta ekki á fólk að taka ótímabæra ákvörðun um endurkaup á sínu fyrra húsnæði í bænum. Þess vegna bjóðist fólki að taka frá eignir út árið 2027.
Annar áfangi áætlunarinnar á að hefjast árið 2027 eða í upphafi 2028. Þá opnast fyrir sölu eigna til annarra en Grindvíkinga.
Geta fengið upplýsingar um sína fyrri eign
Á vefsvæði Þórkötlu geta fyrri eigendur fasteigna fengið upplýsingar um eignirnar. Þar getur fólk nálgast upplýsingar um kjör endurkaupasamnings.
„Þá er gert ráð fyrir því að Grindvíkingar geti síðar sótt um kaup á eign í gegnum vefinn og undirritað samning rafrænt.“
Kynningarfundir verða haldnir í Gjánni í Grindavík miðvikudaginn 11. nóvember, þriðjudaginn 17. nóvember og fimmtudaginn 19. nóvember.