Þetta kemur fram í tilkynningu. Þrjú ár eru í dag síðan fyrsta rýming hófst í Grindavík vegna eldgosa og jarðhræringa. Í tilkynningu frá Þórkötlu segir að áætlunin sé framhald þeirra björgunaraðgerða sem félagið hefur unnið að frá stofnun þess í mars 2024. Grindvíkingar sem tilbúnir eru að flytja aftur í bæinn hafi þrjár leiðir til þess.
- Endurkaup: Kaupleiga eigna
- Frátekin eign: Svigrúm fyrir þá sem vilja bíða átektar
- Leiga í fjölbýli: Leiga á markaðskjörum
Samkvæmt áætluninni er Grindvíkingum boðið að kaupa eignir með þriggja ára skilarétti á meðan enn ríkir óvissa vegna eldsumbrotanna. Fram kemur að áætlunin sé sérsniðin leið sem mæti mörgum af þeim áskorunum sem blasa við Grindvíkingum við endurkaup á eignum í bænum.
„Þó áætlunin snúist um kaup fasteigna þá er ekki um hefðbundin fasteignaviðskipti að ræða, heldur framhald þeirra björgunaraðgerða sem fóru af stað með stofnun félagsins í mars 2024. Endurkaupaáætlun Þórkötlu er kynnt í ljósi nýs áhættumats fyrir Grindavík sem birt var í haust. Áhættumatið var unnið með aðferðafræði sem byggir á alþjóðlegum stöðlum og sýndu niðurstöður þeirrar vinnu að áhætta vegna aukinnar viðveru og búsetu í bænum sé ásættanleg að teknu tilliti til þeirra mótvægisaðgerða sem gripið hefur verið til.“
Samkvæmt endurkaupaáætluninni býðst þeim sem seldu félaginu íbúðarhúsnæði í Grindavík og þeim sem áttu lögheimili í Grindavík og höfðu náð 18 ára aldri þann 10. nóvember 2023, að kaupa fasteignir úr eignasafni Þórkötlu og flytja aftur til Grindavíkur. Horft sé til þess að Grindvíkingar fái tækifæri á að skipta um húsnæði kjósi þeir það og að þeir sem voru á leigumarkaði eða nýttu önnur búsetuúrræði fái tækifæri til þess að eignast heimili í Grindavík.
Segir í tilkynningunni að í fyrsta áfanga, sem stefnt er að því að hefjist í byrjun árs 2027, hyggst félagið bjóða upp á þrjár leiðir sem tryggja eiga farsæla endurkomu eða svigrúm sem flestra hópa í Grindavík.
Helstu skilmálar endurkaupa eru þessir:
- Söluverð eignarinnar er sama og upphaflegt kaupverð Þórkötlu (sama krónutala).
- Byggir á hugmyndafræði kaupleigu, kaupsamningi og kaupleigugreiðslum.
- Lág kaupsamningsgreiðsla og yfirfærsla á eigendaábyrgð.
- Áhætta kaupenda er afmörkuð í allt að þrjú ár með skilarétti og endurgreiðslu.
- Mánaðarlegar kaupleigugreiðslur koma að stórum hluta til lækkunar á kaupverði.
- Fjármögnun frá Þórkötlu á hagkvæmum kjörum í allt að þrjú ár.
Segir í tilkynningunni að í raun megi líkja þessu við leigu með kauprétti, þar sem greidd er tiltekin upphafsgreiðsla, einskonar trygging og svo mánaðarlegar leigugreiðslur.
„Til að mæta þeirri óvissu sem enn ríkir í Grindavík býður félagið kaupendum upp á sérstakan skilarétt í allt að þrjú ár, þar sem kaupendur geta skilað eigninni án skilyrða og fengið upphaflega kaupsamningsgreiðslu endurgreidda. Þá verður á árinu 2027 boðið upp á svokallaða „mýkri aðlögun“ að búsetu í bænum með uppskiptingu á upphafsgreiðslu, kaupleigulausu tímabili og lægri kaupleigu,“ segir í tilkynningunni.
„Félagið leggur ríka áherslu á að enginn þrýstingur verði á einstaklinga til að taka ótímabæra ákvörðun um endurkaup á sínu fyrra húsnæði í Grindvík. Því býðst Grindvíkingum jafnframt leið sem kölluð er „frátekin eign“ og gildir út árið 2027. Í öðrum áfanga, sem horft er til síðar á árinu 2027 eða í ársbyrjun 2028, verður opnað fyrir sölu eignanna til annarra aðila en Grindvíkinga.“
Segir í tilkynningunni að á vefsvæði félagsins www.thorkatla.is geti fyrrum eigendur fasteigna í Grindavík skráð sig inn á mínar síður og fengið upplýsingar um sína fyrri eign. Vefnum sé ætlað að veita væntanlegum kaupendum allar helstu upplýsingar um eignir félagsins og kjör endurkaupasamnings. Þá sé gert ráð fyrir því að Grindvíkingar geti síðar sótt um kaup á eign í gegnum vefinn og undirritað samning rafrænt.
„Vefsvæðið hefur verið opnað og stefnt er að því að í byrjun næsta árs verði hægt að undirrita fyrstu kaupsamningana og hefja afhendingu eigna til fyrri eigenda. Forsætisráðuneytið og Fasteignafélagið Þórkatla hf. boða Grindvíkinga til kynningarfundar miðvikudaginn 11. nóvember nk. kl. 17 í Gjánni í Grindavík. Á fundinum verður endurkaupaáætlun Þórkötlu kynnt og spurningum svarað. Fundinum verður streymt. Frekari kynningarfundir verða svo haldnir í Gjánni í Grindavík bæði þriðjudaginn 17. nóvember kl. 17 og fimmtudaginn 19. nóvember kl.12.“