Upphaflega var lagt til að 2,8 milljarða króna hámark á tekjur Ríkisútvarpsins af auglýsingasölu þegar frumvarp Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið var kynnt í samráðsgátt í haust.
Það ákvæði hefur nú verið fellt úr frumvarpinu vegna athugasemda sem komu fram í umsögnum hagsmunaaðila um að það gæti leitt til undirverðlagningar á íslenskum auglýsingamarkaði, að því er segir í tilkynningu frá stjórnarráðinu.
Breytt frumvarpið var afgreitt úr ríkisstjórn í síðustu viku.
Áframt er lagt til að dregið verði úr fjárframlagi ríkisins til Ríkisútvarpsins um því sem nemur tíu prósentum af auglýsingatekjum þess. Hluta útvarpsgjalds verði svo varið til þess að styðja frekar við einkarekna fjölmiðla.
Hin stóra breytingin í frumvarpinu gæti leitt til þess að annað hvort Rás 1 eða Rás 2 yrði lögð niður í framtíðinni. Í núverandi lögum er kveðið á um að RÚV skuli dreifa efni sínu með að minnsta kosti tveimur útvarpsstöðvum og einni sjónvarpsstöð. Í frumvarpinu er lagt til að lágmarksfjöldi stöva verði felldur úr lögunum.
Markmið frumvarpsins er sagt að koma í veg fyrir að breytigar á tekjuöflun RÚV leiði til þess að meira auglýsingafé fari úr landi en áður, tryggja að breytingarnar skili sér raunverulega til annarra íslenskra fjölmiðla og að RÚV verði áfram aðgengilegur auglýsingavettvangur.