Þetta herma heimildir fréttastofu. Eins og greint hefur verið frá var brotist inn hjá Gullsmiðnum í Mjódd aðfaranótt mánudags. Tjónið nemur um 30 milljónum króna að sögn eigandans. Atvikið náðist að stórum hluta til á upptöku enda eru öryggismyndavélar víða á svæðinu.
Myndefnið sýnir tvo menn koma sér inn í Mjóddina. Þeir voru svartklæddir frá toppi til táar með svartar skíðagrímur fyrir vitum sínum. Þegar þangað er komið ganga þeir rakleiðis að verslun Gullsmiðsins og brjóta sýningarglugga verslunarinnar með stórum hamri.
Veistu meira um málið? Áttu myndband af atvikinu? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullri nafnleynd heitið.
Mennirnir athöfnuðu sig alls í rúmar tvær klukkustundir í versluninni og söfnuðu þýfinu saman í einn bónuspoka og einn glæran plastpoka. Ekki liggur fyrir hvernig þeir komust inn í þjónustukjarna Mjóddarinnar.
Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að rannsókninni miði ágætlega. Verið sé að safna saman gögnum sem þurfi að fara yfir. Þó nokkrar myndbandsupptökur séu þar undir.
Lögreglan biðlar til almennings að hafa augun opin. Allar upplýsingar séu vel þegnar.
Jón Tryggvi Þórsson, eigandi Gullsmiðsins í Mjódd, vonast til að geta opnað verslunina á nýjan leik á morgun.
„Ég var hjá lögreglunni fyrir nokkrum mínútum síðan og var að fara yfir þetta. Það er ekki komið neitt frá þeim enn þá en þetta er í rannsókn. Þeir eru komnir með gögnin frá miðstöðinni í Mjóddinni. Þeir sjást alveg þar en þeir voru náttúrulega vel dúðaðir þannig að það sást ekkert í þá.“
Verið sé að skoða upptökur úr fleiri myndavélum í grenndinni. Hann segir fjölmarga hafa haft samband eftir fréttirnar í gær. Fjölmargir vilji leggja fram hjálparhönd.
„Það eru nú bara allir í sjokki. Maður er búinn að hreinsa og núna er maður að fara yfir þetta. Ég er að fara til trygginganna núna og ræða við þá, hvort það sé hægt að finna einhvern flöt á þessu,“ segir hann og heldur áfram:
„Við vorum nú svona að gæla við það að reyna að opna á morgun. Við ætluðum að vera með svona 1111 afslátt. Við ætlum að reyna að gera eitthvað. Þeir tóku bara gullið en ég er með fullt af annarri vöru sem ég get verið með.“
Veistu meira um málið? Áttu myndband af atvikinu? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullri nafnleynd heitið.