Í fréttatímanum verður einnig rætt við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra sem segir aðbúnaðinn í svínabúi Stjörnugríss óásættanlegan ef myndband úr búinu gefur rétta mynd af aðstæðum. Hún segir sér hafa brugðið þegar hún sá myndbandið, en vill bíða niðurstöðu Matvælastofnunar áður en hún metur eftirlitið.
Forstjóri Bláa lónsins segir stefnt á að sækja 105 milljónir evra, sem svarar til 14,5 milljarða króna, í nýtt hlutafé. Hlutafjárútboð Bláa lónsins hófst klukkan tíu í morgun og stendur til klukkan 16 á föstudag. Rætt verður við Sigríði Margréti Oddsdóttur í hádegisfréttunum.
Einnig verður sagt frá áhyggjum Hrunamanna sem segja vísbendingar um að fyrirtæki í ferðaþjónustu skipuleggi tilfærslu ferða við Gullfoss til að komast hjá gjaldtöku.
Þá verður tekin staðan á innbroti í Mjódd í fyrrinótt, en mennirnir tveir sem brutust inn hjá Gullsmiðnum notuðu stærðar hamar til að brjóta gler verslunarinnar og höfðu þýfið á brott í bónuspoka. Öryggismyndavélar sýna mennina ganga frá Mjóddinni fótgangandi. Eigandinn vonast til að opna verslunina á nýjan leik á morgun.
Fjölbreytt mál og sport í hádegisfréttum á Bylgjunni á slaginu tólf. Umsjónarmaður er Telma Tómasson.