Í liði Gróttu mættu aftur þau Ari Eldjárn og leikkonan Lilja Nótt Þórarinsdóttir. Þau Jóhann Kristófer og Berglind Festival voru mætt fyrir hönd Vals.
Þegar aðeins ein spurning var eftir var staðan 27-27 og hrein úrslitaspurning fram undan. Þá var spurt um orð, orð í fleirtölu. Tvö orð sem eru sögð saman í ákveðnum tilgangi.
Annað liðið náði réttu svari og tryggði sér sætið í undanúrslitunum eftir lygilega spennu eins og sjá má hér að neðan.
Ef þú vilt ekki vita hvernig viðureignin fór og vilt horfa á þáttinn í heild sinni á Sýn+ þá ættir þú ekki að horfa á klippuna hér að neðan.