Jülevenner-leikurinn Jüleklifur kom út fyrir helgi og hefur strax verið spilaður yfir 5000 sinnum á aðeins nokkrum dögum.
„Í íslensku tölvuleikjaflórunni myndi staðsetja þennan leik einhvers staðar á milli Eve Online og Echoes of the end. Minn leikur er reyndar með aðeins einfaldari grafík en söguþráðslega séð er Jüleklifur á pari við aðra íslenska tölvuleiki,“ segir Gauti en eins og nafnið gefur til kynna snýst leikurinn um að klifra. Leikmenn reyna að komast alla leið upp á topp og safna þeim flytjendum sem koma fram á Jülevenner í leiðinni.
„Ég er nú ekki orðinn forritari en ég er orðinn mjög öflugur á gervigreindina. En svo það sé sagt þá er þetta aðeins flóknara en að skrifa bara Make a video game, segir Gauti kíminn og bætir við: „Í leiknum eru alls konar hindranir, sem dæmi er Jónas Sen að kasta tómötum í mig og Jesú Kristur reynir að kasta í þig krossum.“
Tónlistargagnrýnandinn Jónas Sen gaf Gauta eftirminnilega eina stjörnu fyrir tónleikana í fyrra og líkti þeim við helvíti á jörðu, sem Gauti hafði gaman að. Því þótti honum upplagt að hafa Jónas með í leiknum.
Sá sem nær svo mestum árangri í tölvuleiknum hreppir sigurverðlaun.
„Sú sem endar með flest stig þann 15. nóvember fer heim með tíu miða á Julevenner og getur tekið allan vinahópinn með sér. Hugmyndin kom frá því að það eru rosa margir vinahópar að fjölmenna á tónleikana. Maður sér það að Julevenner er að verða algjört vinahópasport.“
Tvennir tónleikar Julevenner Emmsjé Gauta fara fram 18. og 19. desember í ÍR Heimilinu í Breiðholti.
„Svo er ég líka með hlaðvarp í kringum Jülevenner með vini mínum og aðstoðarmanni Emil. Við erum að gefa út vikulega þætti og fórum meðal annars yfir ógeðslega fyndin en smá sorgleg jól Emils í fyrra.“
Í spilaranum hér að neðan má heyra jólasögu Emils en jólin í fyrra kölluðu fram ákveðna tilvistarkrísu hjá kappanum:
Hér má hlusta á hlaðvarp Emmsjé Gauta.