Ríkisfjölmiðillinn BTA greinir frá þessu og vísar í orð Georgi Chalakov, ríkisstjóra í Yambol.
Á myndum frá vettvangi má sjá fjölda bíla á hvolfi og að kviknað hafi í einhverjum þeirra.
Jambol er að finna í suðausturhluta Búlgaríu, en hraðbrautin þar sem slysið varð tengir höfuðborgina Sófíu við hafnarborgina Burgas.
Búlgarskir fjölmiðlar segja að mikil þoka hafi verið á vettvangi.