Íris Erlingsdóttir skrifar:
Fyrrum góðvinur minn lýsti því eitt sinn yfir með stolti að hann væri eins og Bjartur í Sumarhúsum. Ég vissi að hann var að vísa til sjálfstæðisþrjósku Bjarts, en lét hjá líða að spyrja hvort hann hefði lesið bókina til enda.
Vissulega má dást að þreki Bjarts, vinnusemi og þrá hans til að vera sjálfs sín herra. Sá sem hefur þrælað fyrir aðra þekkir verðmæti sjálfstæðisins. Það er heilbrigður metnaður að vilja standa á eigin fótum, sjá sér farborða og þurfa ekki að lúta geðþótta annarra.
En ekki er allt aðdáunarvert sem gert er í nafni sjálfstæðis. Þrjóska verður ekki staðfesta við það eitt að hinn þrjóski gefi henni göfugra nafn. Hrottaskapur verður ekki að hreinskilni, né verður miskunnarleysi eitthvað til að hreykja sér af.
Hver borgar fyrir þrjóskuna?
Bjartur er stórbrotin skáldsagnapersóna. Af því leiðir ekki að hann sé eftirsóknarverð fyrirmynd. Í mínum lestri liggur harmleikur hans meðal annars í því að hann metur sjálfstæði sitt svo hátt að líf fólksins sem honum ber að annast verður að víkja. Hann leggur mikið á sig, en hann leggur líka mikið á aðra.
Þar liggur siðferðilegi munurinn sem gleymist þegar þrjóskan er hafin til vegs: Hver borgar fyrir hana? Eitt er að velja sér sjálfum erfitt líf, annað að krefjast þess að þeir sem manni unna greiði fyrir stolt manns með hamingju sinni og heilsu.
Karlmannlegar dyggðir birtast í manninum sem stendur við orð sín, líka þegar það kostar hann. Manninum sem tekur ábyrgð þegar eitthvað fer úrskeiðis og sem hægt er að treysta þegar veikindi og áföll sækja að. Þeir sem á hann treysta finna fyrir honum í því öryggi sem hann veitir.
Það er reisn yfir manni sem getur borið byrðar án þess að láta hvert skapbrigði sitt stjórna sér, sem mætir erfiðleikum af yfirvegun og gerir ekki alla í kringum sig ábyrga fyrir vanlíðan sinni. Slíkur styrkur krefst sjálfsaga. Hljóðlát reisn hefur ekkert með refsandi þögn að gera. Að neita að tala við sína nánustu, halda þeim í óvissu eða láta þá giska á hvað þeir hafi gert af sér ber hvorki vott um styrk né reisn. Þar er þögninni beitt til að láta aðra finna til. Maður getur verið fámáll og hlýr, en hann getur líka verið fámáll og grimmur.
Mildi er líka styrkur
Tryggð, réttsýni og örlæti eru karlmannlegar dyggðir. Að misnota ekki veikleika þess sem treystir manni. Að rétta fram hjálparhönd þegar einhver fellur og hafa manndóm til að sleppa kröfunni um að eiga alltaf síðasta orðið.
Svo er það mildi, sem á fullt erindi í umræðu um karlmennsku. Sterkur maður veit að hann getur sært og gætir þess vegna að sér. Hann þarf ekki að sýna yfirburði sína gagnvart þeim sem honum unna. Mildi krefst þess stundum að maður leggi eigið stolt til hliðar og það reynist ýmsum þyngra en líkamlegt erfiði.
Sjálfstæði er verðmætt, en það leysir engan undan skyldum við annað fólk. Sá sem vill njóta trausts og ástar verður sjálfur að leggja eitthvað af mörkum. Enginn getur heimtað hlýju og boðið kulda í staðinn, krafist skilnings og sýnt engan, vænst tryggðar og hagað sér eins og hann skuldi engum neitt.
Bjartur í Sumarhúsum er meðal eftirminnilegustu persóna íslenskra bókmennta. Þar má hann gjarnan sitja, stórbrotinn, þver og einmana, og gefa okkur tilefni til umhugsunar.
Heima viljum við hins vegar mann sem hægt er að treysta og sem hefur styrk til að bera byrðar, sjálfsaga til að særa ekki að óþörfu og hjarta til að annast um þá sem honum unna.
Það er sönn karlmennska.
Höfundur er fjölmiðlafræðingur.