Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 4. nóvember, segir að Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi farið fram á að maðurinn yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald og lýst atvikum sem svo að lögreglu hafi sama dag borist tilkynning um að hópur manna hefði rænt dreng í Reykjavík og að einn þeirra hefði haldið byssu að andliti hans.
Lögregla hafi rætt við brotaþola á heimili hans og hann hafi verið í miklu uppnámi eftir atvikið. Hann hafi sagst hafa verið á leið heim þegar fjórir hafi komið ógnandi í átt að honum. Hann hafi reynt að komast undan en einn þeirra náð honum við, haldið á skotvopni og kynnt sig sem bróður [afmáð]. Hinir þrír hafi komið skömmu síðar og krafið hann um pakka sem hann hafði sótt í póstbox og farsíma hans. Mennirnir hafi farið inn á bankareikninga hans í símanum og millifært 120 þúsund krónur af reikningi hans inn á reikning [afmáð].
Potuðu í drenginn með skrúfjárni
Þegar drengurinn hafi útskýrt að frekari fjármunir væru á læstum reikningi hafi einn mannanna dregið upp hníf. Þá hafi drengurinn verið sleginn með krepptum hnefa í hægri kjálka og potað í hann með skrúfjárni sem tekið hafði verið úr vinnubuxum hans, með þeim afleiðingum að hann hlaut minniháttar áverka. Mennirnir hafi jafnframt tekið vinnuhníf hans áður en þeir hafi sagt honum að fara.
Auk þess máls sé ungi maðurinn með 14 opin mál í kerfum lögreglu framin á tímabilinu frá 1. janúar 2026 til og með 4. nóvember 2026. Þar af séu 11 opin mál vegna meintra brota frá því í ágúst 2026, en í átta þeirra sé hann grunaður um stórfellda líkamsárás, rán, frelsissviptingu, valdstjórnarbrot eða hótanir, ýmist eitt þessara brota eða fleiri.
Ungur maður og viðkvæmur að sögn verjanda
Í úrskurðinum segir að verjandi unga mannsins hafi lagt áherslu á það í málflutningi sínum að líta bæri til þess að um ungan og viðkvæman mann sé að ræða. Umbeðið úrræði, gæsluvarðhald vegna brotahrinu, sé mjög íþyngjandi og viðurhlutamikið gagnvart honum og því beri að gæta meðalhófs.
Þrátt fyrir það telji dómurinn þegar litið er til málavaxta og framlagðra gagna að uppfyllt sé það skilyrði laga um meðferð sakamála að ætla megi að ungi maðurinn muni halda áfram brotum á meðan málum hans er ekki lokið fari hann frjáls ferða sinna.
Auk þess verði í því ljósi ekki framhjá því litið að háttsemi sú sem grunur leikur á um að hann hafi ítrekað haft í frammi sé mjög alvarleg. Að mati dómsins verði ekki séð að sú brotahrina sem nú hafi staðið yfir nær sleitulaust frá því í ágúst síðastliðnum verði ekki að svo stöddu stöðvuð með öðrum hætti en því að fallast á kröfu lögreglustjóra.
Hann skuli því sæta gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 2. desember 2026. Ungi maðurinn kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar en kæru hans var vísað frá sökum formgalla. Því stendur úrskurður héraðsdóms.