Þetta kemur fram í viðamikilli umfjöllun bresku fjölmiðlanna Guardian og ITV News. Fram kemur að hann hafi farið fram á það við Hæstarétt Englands að birting yrði stöðvuð, lögmenn hans hafi haldið því fram að ef ásakanirnar yrðu gerðar opinberar myndi hann svipta sig lífi. Dómstóllinn hafnaði beiðninni, sagði hætt að lágmarka áhættu vegna þessa og sagði ekki á ábyrgð dómstólsins að vernda leikarann.
Ein stúlka sem ræðir við miðlana segir að hún hafi verið fimmtán ára gömul þegar Walliams hafði fyrst samband við hana og að hún hafi verið orðin sautján ára þegar þau áttu fyrst í kynferðislegu samneyti. Segir í umfjölluninni að fjölmargar konur hafi stigið fram og sagt Walliams hafa misnotað vald sitt og frægð til að notfæra sér þær í kynferðislegum tilgangi þegar þær voru unglingar eða ungar konur.
Walliams neitar ásökunum í yfirlýsingu sem hann sendi Guardian vegna málsins. Hann segir að þegar hann líti til baka geri hann sér grein fyrir því að hann hafi stundum hagað sér í hugsunarleysi gagnvart öðru fólki sem hann hafi átt í lauslegum kynferðislegum samböndum við.
„Ég geri mér grein fyrir því að ég tók ekki alltaf nægilegt tillit til tilfinninga fólks. Það er eitthvað sem ég sé eftir. Og þó að valdaójafnvægi sé óhjákvæmilegt þegar annar aðilinn er frægur, þá er það allt annað mál að misnota það vald og það er eitthvað sem ég gerði aldrei,“ segir leikarinn.
Hann segist ekki vera kynferðisbrotamaður. „Ég hef ekki brotið lög, en ég er miður mín yfir því að sumar þeirra kvenna sem ég kynntist fyrir tíu til tuttugu árum hafi nú lýst særindum eða reiði í minn garð.“