Farþeginn komst út af sjálfsdáðum en ökumaðurinn ekki. Sá var fastur í bílnum um nokkurn tíma, samkvæmt yfirlýsingu frá Lögreglunni á Vesturlandi.
Björgunarsveitarmenn drógu bílinn á endanum úr ánni og var ökumaðurinn fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Sjá einnig: Bíllinn á nokkru dýpi í töluverðan tíma
Farþeginn hafði þá verið fluttur með sjúkrabíl til skoðunar. Meiðsl hans eru talin minniháttar.
Lögreglan er með tildrög slyssins til rannsóknar.