Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra bandaríska örgjörvaframleiðandans Nvidia. „Saga um svokallaðan kínverskan njósnara er órökréttur óhróður og rógur,“ segir Guo Jiakun, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins.
Jensen Huang, forstjóri og einn stofnandi Nvidia, hefur viðurkennt að hann hafi haldið framhjá konu sinni til 40 ára. Bandaríska leyniþjónustan telur að viðhaldið sé njósnari á vegum kínverska ríkisöryggisráðuneytisins.
Nvidia hefur hafið óháða rannsókn á málinu. Stjórn fyrirtækisins greindi frá því að hún teldi enga ástæðu til ætla að leyndarmál þess væru í hættu. Huang hefur sagst styðja rannsóknina og hefur heitið fullri samvinnu.
Nvidia er eitt verðmætasta fyrirtæki heims. Það býr til örgjörva sem notaðir eru í gervigreindartækni.
Huang hefur verið náinn óformlegur ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta um málefni gervigreindar. Þeir ferðuðust saman til Peking fyrr á þessu ári.