Feiti-Jos með fulla nös í Freetown

Feiti-Jos með fulla nös í Freetown

Feiti-Jos með fulla nös í Freetown

Jos Leijdekkers komst snemma í kast við lögin. Hann er fæddur 1991 og var strax 2011, þá tvítugur, dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps.

Það er eini dómurinn sem Jos Leijdekkers hefur setið af sér. Frá því í febrúar 2024 og fram í maí á þessu ári fékk hann á sig alls níu fangelsisdóma í Hollandi og Belgíu, samtals næstum 100 ára fangelsi, fyrir umfangsmikið dópsmygl og aðild að nokkrum morðum sem hann á að hafa fyrirskipað. Þessir dómar voru allir kveðnir upp að Leijdekkers fjarstöddum en hann hefur að því er talið haldið sig að mestu í Tyrklandi og við vesturströnd Afríku síðan 2020.

Borgarstjóri í kókaínhöfuðborginni

En glæpaferill hans hófst mun fyrr og kókaínbaróninn Bolle Jos, eða Feiti-Jos, varð til á örstuttum tíma eftir að hann var laus úr fangelsi 2016.

Jos Leijdekkers fæddist í borginni Breda í Hollandi, mitt á milli Rotterdam í Hollandi og Antwerpen í Belgíu, sem hefur verið kölluð kókaínhöfuðborg Evrópu. Ef einhver á tilkall til borgarstjórastólsins þá er það Jos Leijdekkers.

Hann ólst upp í Prinsenbeek, smábæ eða hálfgerðu úthverfi Breda, á brotnu heimili við erfiðar aðstæður. Pabbi hans var í nánum tengslum við glæpagengin og hafði góð tengsl við hafnirnar í Rotterdam og Antwerpen. En Leijdekkers þurfti að vinna sig upp innan gengjanna eftir að hann var laus úr fangelsi og varð fljótt alræmdur leigumorðingi.

Skiptu hassinu út fyrir kókaín

Tengslin innan fangelsisveggjanna komu sér vel utan þeirra og hann gekk strax í raðir Mocro-mafíunnar. Flestir meðlima hennar voru Marokkómenn en hún var stofnuð fyrir aldamót í kringum hassinnflutning frá Norður-Afríku til Evrópu. Eftir aldamótin var hassinu skipt út fyrir kókaín og það gerðu önnur glæpagengi líka.

Í kringum fjármálahrunið 2008 höfðu eiturlyfjamafíur sett allt á annan endann í hollensku samfélagi. Morðum fjölgaði til muna og langflest tengdust átökum í undirheimunum og baráttu um yfirráðasvæði og flutningaleiðir fyrir kókaínið.

Leiðtogi Mocro-mafíunnar var Ridouan Taghi. Hann hafði komið sér vel fyrir í Hollandi, rak veitingastaði og virtist á yfirborðinu hafa byggt upp mikið viðskiptaveldi. En þegar í ljós kom hvernig uppbyggingin átti sér stað og að lögreglan væri á hælunum á honum flúði hann land.

Feiti-Jos fékk krúnudjásnið

Ridouan Taghi stýrði mafíunni frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum og hélt lengst af til í Dúbaí. Þar fjarstýrði hann einum öflugasta eiturlyfjahring Evrópu og valdi Jos Leijdekkers til að passa upp á krúnudjásnið, höfnina í Antwerpen í Belgíu.

Á örfáum árum, frá 2016 til 2019, hreinlega mokaði Leijdekkers kókaíni frá Suður-Ameríku til Evrópu. Hann og forverar hans voru með hafnarstarfsmenn í vasanum, tollinn líka og um leið og lögreglan lokaði einni flutningsleið opnuðust tvær aðrar. Þetta var og hefur alltaf verið leikur kattarins að músinni.

Á þessum árum lagði lögreglan í Antwerpen hald á um það bil 50 tonn af kókaíni á hverju ári. En yfirvöld hafa gefið það út, og líklega er það töluverð bjartsýni, að um það bil fimmtungur af því kókaíni sem flutt er um höfnina lendi í höndum lögreglu og tollvarða.

Eftirspurnin alltaf að aukast

Kókaín hefur aldrei verið vinsælla. Þar af leiðandi hefur aldrei verið meira um kókaínsmygl. Talið er að heimsframleiðslan nemi um fjögur þúsund tonnum. Það er fjórfalt meira en var fyrir áratug.

Næstum öll kókaínframleiðslan er í þremur ríkjum Suður-Ameríku: Kólumbíu, Bólivíu og Perú. Þaðan þarf að koma efnunum þangað sem eftirspurnin er mest, í Bandaríkjunum og í Evrópu.

Kókaínstraumur frá Vestur-Afríku til Evrópu

Og nú eru stóru hafnirnar ekki lengur stærsta vandamálið, heldur færist það í aukana að kókaín sé flutt í smærri einingum inn til Evrópu meðfram allri suðurströnd álfunnar.

Það flytja fáir kókaín í tonnavís milli landa heldur flytja flestir tugi kílóa í einu og því er það minna högg í hvert sinn ef efnin nást. Núna liggur stríður straumur frá Vestur-Afríku til Evrópu. Árin 2010 til 2020 var lagt hald á um það bil eitt tonn af kókaíni á ári við vesturströnd Afríku.

Algjör sprenging varð 2020 þegar lögregla náði 20 tonnum. Hún hefur síðan komist yfir um 30 tonn árlega og í fyrsta sinn í fyrra yfir 30 tonn.

Núna virðist stefna í að mikið af því kókaíni sem berst til Evrópu fari í gegnum Vestur-Afríku. Kannski er það þegar orðið þannig en flutningsleiðin hefur breyst. Núna hefur evrópskum höfnum verið skipt út fyrir gullnar strendur.

Og það er ekki skrítið að Síerra Leóne verði fyrir valinu. Fyrir örfáum árum var landið í rúst eftir rúmlega tíu ára borgarastyrjöld. Átökin kostuðu 75 þúsund manns lífið og hröktu helming íbúanna á flótta. Þegar stríðinu lauk og athygli umheimsins beindist annað varð uppbyggingin ekki sú sem flestir gerðu ráð fyrir.

Freetown er himnaríki fyrir eiturlyfjasmyglara

Stjórnmálamenn létu stjórnast af auðfengnum gróða og auk þess eru flestir enskumælandi í Síerra Leóne og því varð þetta fallega land fullkomið fyrir eiturlyfjahringina til að hefja starfsemi.

Við strendurnar voru álitlegar hafnir sem hægt var að nýta og hægt er þvo ágóðann með því að reisa glæsihótel við hliðina. Núna iða þessar strendur af lífi, eins konar himnaríki fyrir eiturlyfjasmyglara. Í Freetown eru nýrisin háhýsi um allt, það eru glæsibílar á götunum og stórir næturklúbbar í miðborginni.

Harðneita að framselja margdæmdan glæpamann

Og þetta er alls ekkert einsdæmi. Eiturlyfjasamtök hafa gjörbreytt litlum strandbæjum, til dæmis í Mexíkó og Svartfjallalandi, og reist hallir og skemmtistaði fyrir þvættaða peninga úr glæpaheiminum.

En það hefur gerst á áratugum. Okkar maður Jos Leijdekkers hefur gert þetta sama í Freetown á örfáum árum. En hvernig tókst honum að komast svona hratt inn í innsta hring stjórnmálaelítunnar í Síerra Leóne og forsetans sjálfs, Júlíasar Maada Bio, sem harðneitar að framselja margdæmdan glæpamann til Hollands, þrátt fyrir að Hollendingar hafi hætt allri fjárhagsaðstoð til Afríkuríkisins, nema þeir samþykki framsalið?

Það spyrja sig margir að því hvernig fátækt Afríkuríki sem treystir svo mjög á neyðar- og fjárhagsaðstoð annarra ríkja skuli geta neitað sér um hana til að vernda glæpamann. En skýringin er einföld. Forsetinn og stjórnmálamennirnir fá miklu hærri upphæðir frá eiturlyfjagengjunum.

Tyrkneski fjárfestirinn Omar Sheriff

Talið er að Jos Leijdekkers hafi fyrst komið til Síerra Leóne árið 2022. Árin þar á undan var hann í Tyrklandi og stýrði eiturlyfjasamtökunum og Mocro-mafíunni þaðan. Þar þóttist hann vera tyrkneskur fjárfestir að nafni Omar Sheriff.

Sá komst oft í kast við lögin og var ítrekað handtekinn en alltaf sleppt. Grunur er um að hann hafi mútað lögreglumönnum til að komast undan. Þegar það þrengdi að honum í Tyrklandi þurfti hann að færa sig, þar sem lögreglan væri viðráðanlegri og hægt væri að komast inn undir hjá yfirvöldum. Og það tókst honum.

Fógetinn og dóttir forsetans

Þessi mynd er tekin í messu í smábænum Tihun í Síerra Leóne. Hún var tekin á nýársdag í fyrra og fljótlega upp úr því var lögreglu bent á hana. Þá fyrst lá það fyrir að Bolle Jos væri í Síerra Leóne og stýrði veldi sínu þaðan. Hann hafði þá líklega gert það um árabil, algjörlega óáreittur.

En það er fleira áhugavert á myndinni. Við hlið hans stendur ung kona. Hún heitir Agnes Bio og faðir hennar er Julius Maada Bio, forseti Síerra Leóne. Það hefur ekki verið staðfest en margir fjölmiðlar hafa greint frá því að Jos Leijdekkers hafi eignast barn með dóttur forsetans. Sú staðreynd og peningaflóðið sem fylgdi virðist hafa dugað honum til að tryggja sér sæti við hlið forsetans.

Núna greina fjölmiðlar frá því að hann hafi svo gott sem eignast Afríkulandið, því hann stýri þar öllu sem hann vilji og moki peningum í kosningasjóði forsetans og tengdaföður síns, til þess að tryggja honum og sjálfum sér lengri valdatíð.

Og það er fátt sem bendir til þess að stjórnvöld í Síerra Leóne ætli að láta undan þrýstingi Evrópuríkja og framselja Bolle Jos eða veita upplýsingar um hvar hann sé niðurkominn.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stöðvaði greiðslur til Síerra Leóne í byrjun mánaðarins, sem námu alls 18 milljónum evra, jafnvirði rúmlega 2,4 milljarða íslenskra króna. Hollendingar vonast til þess að stöðva greiðslur næsta árs líka, sem nema rúmum 22 milljónum evra.

David van Weel, dómsmálaráðherra Hollands, ferðaðist til nágrannaríkjanna Gana og Líberíu í byrjun þessa mánaðar til að afla stuðnings við kröfu Hollendinga um að fá Bolle Jos framseldan. Hann segir að það verði ekki liðið að Síerra Leóne haldi áfram hlífiskildi yfir margdæmdum glæpamanni.

Van Weel er spurður að því hvort þetta séu ekki fullharkaleg viðbrögð, því það eigi eftir að bitna á íbúunum fái stjórnin í Sierra Leone ekki þessa fjármuni. Hann segir að svo sé ekki, því vera hans þar valdi íbúum landsins mun meiri skaða.

Eitt stærsta kókaínsmygl sögunnar

En það er fátt sem bendir til þess að Bolle Jos og Mocro-mafían dragi úr starfsemi sinni. Þvert á móti. Lögregluyfirvöld á Spáni stöðvuðu í maí á þessu ári flutningaskipið Arconian suður af Kanaríeyjum.

Um borð voru rúmlega 30 tonn af kókaíni. Það er eitt stærsta kókaínsmygl sögunnar og skipverjar handteknir, sem höfðu nokkrur tengsl við Mocro-mafíuna. Og viti menn, Arconian var að koma frá Freetown í Sierra Leone. Talið er að efnin hafi átt að flytja með hraðbátum til Spánar.

Sendingar með nokkur tonn af kókaíni á þessari sömu leið hafa verið stöðvaðar síðustu misseri. Mocro-mafían og fleiri samtök hafa þurft að gjörbreyta starfsemi sinni eftir að lögregluyfirvöldum í Belgíu og Hollandi tókst að brjóta upp dulkóðað samskiptaforrit sem skipulagðir glæpahópar notuðust við og var kallað Sky. Gögn þaðan, og úr öðru forriti sem nefndist EncroChat, nýttust meðal annars í sakamálarannsóknum hér á landi.

Þau urðu líka til þess að forvígismaður Mocro-mafíunnar áður en Bolle Jos tók við, Marokkómaðurinn Ridouan Taghi, var handtekinn 2019. Hann var framseldur til Hollands og stóð í mikilli hefndaraðgerð að því er virtist úr fangaklefanum. Hann og hans menn hótuðu Mark Rutte, þáverandi forsætisráðherra Hollands, og Katrínu Amalíu, erfingja hollensku krúnunnar, lífláti.

Þeir félagar eira engu þegar kemur að ofbeldi gegn þeim sem þeir óttast eða telja að ógni sér. Það sýna gögnin úr samskiptaforritunum sem lögregla náði úr Sky og urðu til þess meðal annars að hægt var að dæma Bolle Jos í fangelsi, þó svo það væri að honum fjarstöddum.

Og það er öruggt að hann fær langan fangelsisdóm, þegar eða ef hann næst, og íbúar Freetown fá loksins frelsi undan oki eiturlyfjaherranna.

#feiti #fulla #jos #með #nös


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-11-09-feiti-jos-med-fulla-nos-i-freetown-491841

📰 Aðrar fréttir

Hvað kostar að reka bíl?
📅 09.11.2026 👁️ 2
Hvað kostar að reka bíl?
Kílómetragjald hækkur um 15,9% um áramótin. Þegar gjaldið var sett á um síðustu áramót var olíugjald afnumið og lækkaði eldsneytisverð töluvert. Verði...
Íslendingar treysta á að þetta reddist – Sláandi niðurstöður nýlegrar könnunar
📅 09.11.2026 👁️ 1
Íslendingar treysta á að þetta reddist – Sláandi niðurstöður nýlegrar könnunar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn Verum viðbúin til að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins gegn óvæn...
Minnast Magda­lenu sem fannst myrt með for­eldrunum - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Minnast Magda­lenu sem fannst myrt með for­eldrunum - Vísir
Lögregla í Póllandi rannsakar enn árásina á aðaltorginu í Kraká á laugardag þar sem sex manns létust og fimmtán særðust. Árásarmaðurinn lést svo af sá...
Bæjar­stjóri Kópa­vogs vill kalla eftir veikindavottorðum starfs­fólks - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Bæjar­stjóri Kópa­vogs vill kalla eftir veikindavottorðum starfs­fólks - Vísir
Þá verður sagt frá því að ökumaður bifreiðar, sem hafnaði úti í Kleifá á Snæfellsnesi í gærmorgun, hafi verið úrskurðaður látinn á Landspítalanum. Tve...
Bíll borgar­stjóra skemmdist og nýr tekinn á leigu - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Bíll borgar­stjóra skemmdist og nýr tekinn á leigu - Vísir
Vísi barst á dögunum ábending um að Hildur Björnsdóttir væri komin á nýjan borgarstjórabíl, nánar tiltekið Audi-jeppa í stærri kantinum. Í svari við f...
How 3D prototyping can help Carnival creators test big ideas before building
📅 09.11.2026 👁️ 1
How 3D prototyping can help Carnival creators test big ideas before building
Carnival design thrives on excess. A successful float, stage element or queen’s costume may combine towering forms, saturated colour, reflective surfa...
Í­huga að loka á TikTok vegna barnaníðsefnis - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Í­huga að loka á TikTok vegna barnaníðsefnis - Vísir
Forsvarsmenn TikTok, sem er í eigu kínversks fyrirtækis, viðurkenndu í tengslum við dómsmál í Bandaríkjunum árið 2022 að barnaníðsefni væri vandamál á...
Kúrmeðferðin heillaði Dóra en Steindi var ekki jafn hrifinn - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kúrmeðferðin heillaði Dóra en Steindi var ekki jafn hrifinn - Vísir
Það verður að segjast að Steindi var ekki beint hrifinn af nándinni í meðferðinni en Halldór náði að koma sér í stellingar og njóta. Hér að neðan má s...
Kári sakar Amgen um lygar vegna nýs þyngdarlyfs
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kári sakar Amgen um lygar vegna nýs þyngdarlyfs
Bloomberg greindi frá því í síðustu viku að megrunarlyfið MariTide eigi rætur að rekja til rannsókna Íslenskrar erfðagreiningar á erfðaefni um 200 þús...
Ís­lendingur í Taí­landi dæmdur fyrir þjófnað - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Ís­lendingur í Taí­landi dæmdur fyrir þjófnað - Vísir
Þetta kemur fram í viðtali DV við Jóhann þar sem hann upplýsir um niðurstöðuna. Klippa: Íslendingur sakfelldur fyrir þjófnað í Taílandi Atvikið í Pato...
Golfið gefur líkams­ræktinni nýjan til­gang - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Golfið gefur líkams­ræktinni nýjan til­gang - Vísir
Markmiðið er að verða betri í golfi eða viðhalda getu sinni lengur. Á leiðinni hefur líka myndast samfélag þar sem enginn fær nóg af golfspjalli. Bjar...
Vikan á Instagram: „Upplifun að fara á Sexy Fish“
📅 09.11.2026 👁️ 1
Vikan á Instagram: „Upplifun að fara á Sexy Fish“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudögum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem við e...
SKIMS jóladagatal Kim Kardashian sagt vera rusl og algjört okur: „Tilefni til málsóknar“
📅 09.11.2026 👁️ 1
SKIMS jóladagatal Kim Kardashian sagt vera rusl og algjört okur: „Tilefni til málsóknar“
Kim Kardashian sætir nú harðri gagnrýni á netinu vegna jóladagatals sem hún sendi frá sér undir vörumerki sínu SKIMS.Notendur samfélagsmiðla hafa kall...
Kristinn um nýjan starfsmannastjóra Trumps: Yrði ekki treyst til formennsku í húsfélagi
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kristinn um nýjan starfsmannastjóra Trumps: Yrði ekki treyst til formennsku í húsfélagi
Kristinn Hrafnsson blaðamaður segir Stephen Miller, nýskipaðan starfsmannastjóra Hvíta hússins, öfgamann sem auki hættuna sem stafi af stjórn Donalds ...
Siggi Hlö varar við svindlsíðum: „Við erum að heyra um alltof marga Íslendinga sem falla í þá gryfju“
📅 09.11.2026 👁️ 1
Siggi Hlö varar við svindlsíðum: „Við erum að heyra um alltof marga Íslendinga sem falla í þá gryfju“
Farþegar á leið til Bretlands þurfa að hafa sótt um rafrænt ferðaleyfi, svokallaða ETA-vegabréfsáritun (Electronic Travel Authorisation) áður en þeir ...
Segir erlenda brotamenn hafa fengið afslátt af refsingum sínum – Vísar til manns sem nú ógnar Íslendingum
📅 09.11.2026 👁️ 1
Segir erlenda brotamenn hafa fengið afslátt af refsingum sínum – Vísar til manns sem nú ógnar Íslendingum
Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir harðlega lagabreytingu sem gerði kleift að veita erle...
Dagvöruvísitala ASÍ hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
📅 09.11.2026 👁️ 1
Dagvöruvísitala ASÍ hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hækkaði á tímabilinu ágúst til nóvember þrátt fyrir loforð matvöruverslana um að lækka verð til að sporna...
Matvöruverð hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
📅 09.11.2026 👁️ 1
Matvöruverð hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hækkaði á tímabilinu ágúst til nóvember þrátt fyrir loforð matvöruverslana um að lækka verð til að sporna...
Réðust á eina stærstu olíu­vinnslu Rúss­lands - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Réðust á eina stærstu olíu­vinnslu Rúss­lands - Vísir
Kirishi-olíuvinnslan í Leníngrad-héraði er sú næststærsta í Rússlandi og er nærri Pétursborg. Við hefðbundnar aðstæður hefur þessi vinnsla verið notuð...
Biðlisti reglugerða og tilskipana „hefndargjöf“ fyrir EES ríkin
📅 09.11.2026 👁️ 1
Biðlisti reglugerða og tilskipana „hefndargjöf“ fyrir EES ríkin
Dráttur á innleiðingu þeirrar löggjafar frá Evrópusambandinu sem á við um innri markaðinn hefur í nokkrum tilvikum leitt til þess að reglugerðir og ti...
Euro­vision löngu hætt að vera tónlistarkeppni - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Euro­vision löngu hætt að vera tónlistarkeppni - Vísir
Jónas og Valur Grettisson, blaðamaður Heimildarinnar, voru gestir Símonar Birgissonar í hlaðvarpinu Menningarvaktinni. Þar var rætt um leiksýninguna H...
Í­búar á Ís­landi 560 þúsund árið 2076 - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Í­búar á Ís­landi 560 þúsund árið 2076 - Vísir
Þrjár spár eru birtar undir yfirheitinu mannfjöldaspá: grunnspá, lágspá og háspá, en þær byggja á mismunandi forsendum um frjósemi og búferlaflutninga...
Talinn hafa kæft föður sinn með kodda - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Talinn hafa kæft föður sinn með kodda - Vísir
Maðurinn heitir Gunnar Freyr Hilmarsson og er á 46. aldursári. Í ákærunni sem Vísir hefur undir höndum kemur fram að hann hafi aðfararnótt 26. júlí í ...
Ökumaður látinn eftir að bíll hafnaði í Kleifá
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ökumaður látinn eftir að bíll hafnaði í Kleifá
Ökumaður bíls sem hafnaði í Kleifá í umferðarslysi í gærmorgun er látinn. Hann sat fastur í bifreiðinni um tíma.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lög...
Bana­slys á Snæ­fells­nesi - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Bana­slys á Snæ­fells­nesi - Vísir
Farþeginn komst út af sjálfsdáðum en ökumaðurinn ekki. Sá var fastur í bílnum um nokkurn tíma, samkvæmt yfirlýsingu frá Lögreglunni á Vesturlandi. Bjö...
Jóhann Freyr slapp við fangelsi í Taílandi þrátt fyrir þungan dóm
📅 09.11.2026 👁️ 1
Jóhann Freyr slapp við fangelsi í Taílandi þrátt fyrir þungan dóm
Jóhann Freyr Hallgrímsson, 37 ára gamall Akureyringur, var fyrir um mánuði síðan sakfellldur fyrir þjófnað og dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fang...
Forstjóri eins verðmætasta fyrirtækis heims í miðju njósnahneyksli – Þetta er vitað um málið
📅 09.11.2026 👁️ 1
Forstjóri eins verðmætasta fyrirtækis heims í miðju njósnahneyksli – Þetta er vitað um málið
Bandaríski tæknirisinn Nvidia hefur hafið sjálfstæða rannsókn á því hvort forstjóri fyrirtækisins, Jensen Huang, hafi verið skotmark erlendra njósnara...
Manndráp í Kópavogi: Banaði föður sínum í rúminu
📅 09.11.2026 👁️ 1
Manndráp í Kópavogi: Banaði föður sínum í rúminu
Maður sem grunaður er um að hafa banað föður sínum á heimili sínu í Kópavogi þann 26. júlí síðastliðinn hefur verið ákærður fyrir manndráp og stórfell...
Erlendur ferðamaður lést í bílslysi á Snæfellsnesi
📅 09.11.2026 👁️ 2
Erlendur ferðamaður lést í bílslysi á Snæfellsnesi
Erlendur ferðamaður á þrítugsaldri lést eftir alvarlegt umferðarslys á Snæfellsnesi í gærmorgun, sunnudaginn 8. nóvember. Bifreið sem hann ók fór út a...
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp
📅 09.11.2026 👁️ 2
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp Lofts­lags­ráð­stefnan COP31 hefst í dag í ríki sem notar kol og glímir við plast­mengun. Lofts­lags­ráð­stefnan COP31 ...
Ákærður fyrir að taka föður sinn hálstaki og kæfa hann með kodda
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ákærður fyrir að taka föður sinn hálstaki og kæfa hann með kodda
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fimmtugsaldri fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa drepið föður sinn. Maðurinn er ...
Ekki meiri kröfur án ábyrgðar
📅 09.11.2026 👁️ 2
Ekki meiri kröfur án ábyrgðar
Ekki meiri kröfur án ábyrgðar Ríki og sveit­ar­fé­lög bera sam­eig­in­lega ábyrgð á því að börn fái jöfn námstæki­færi, en kenn­arar þurfa tíma, náms­...
Sjónar­spil við Capri - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Sjónar­spil við Capri - Vísir
Capri liggur undan ströndum Napóli, við miðbik Ítalíu. Eyjan er mjög vinsæll ferðamannastaður. Um helgina var þar gefin út gul viðvörun vegna úrkomu o...
Kalla eftir auknu gagnsæi í svínahaldi
📅 09.11.2026 👁️ 2
Kalla eftir auknu gagnsæi í svínahaldi
Dýraverndarsamband Íslands kallar eftir auknu gagnsæi í svínahaldi og segir að það sé óásættanlegt að starfsemin sé svo lokuð að almenningur fái fyrst...
Vilja að frestur til að upp­fylla kröfur verði endur­skoðaður - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Vilja að frestur til að upp­fylla kröfur verði endur­skoðaður - Vísir
Dýraverndarsamband Íslands segir að myndefnið sem tekið var í innbroti í svínabú Stjörnugríss og hefur verið í dreifingu varpi ljósi á alvarleg kerfis...
Spjallið með Frosta Logasyni | Leon Hill – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
📅 09.11.2026 👁️ 2
Spjallið með Frosta Logasyni | Leon Hill – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
Spjallið með Frosta LogasyniÁstralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína...
Ók með fíkniefni, peninga og hníf – Grunaður um fjölda brota
📅 09.11.2026 👁️ 2
Ók með fíkniefni, peninga og hníf – Grunaður um fjölda brota
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt en alls voru 35 mál skráð í kerfi hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan ...
Hetjudáð lögreglumanns í Kraká náðist á myndband – Gafst ekki upp þrátt fyrir skotsár
📅 09.11.2026 👁️ 1
Hetjudáð lögreglumanns í Kraká náðist á myndband – Gafst ekki upp þrátt fyrir skotsár
Nýtt myndskeið hefur verið birt af átökum tveggja lögreglumanna við vopnaðan árásarmann í borginni Kraká í Póllandi á laugardag. Á myndskeiðinu sést m...
Trump says he was 'kidding' about Dana White press secretary offer
📅 09.11.2026 👁️ 2
Trump says he was 'kidding' about Dana White press secretary offer
The president told the Ultimate Fighting Championship boss to "please take the job" in a Truth Social post on Saturday.
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra Nvidia
📅 09.11.2026 👁️ 3
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra Nvidia
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra bandaríska örgjörvaframleiðandans Nvidia. „Saga um svokallaðan kínverskan njósnara er órökréttur óhróður og r...
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný
📅 09.11.2026 👁️ 3
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, fundar í dag með for­sæt­is­ráð­herra Katar, sem ...
Fátt breyst á ári frá löggildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks
📅 09.11.2026 👁️ 2
Fátt breyst á ári frá löggildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks
Lítið hefur breyst síðan Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fyrir ári síðan að mati ÖBÍ réttindasamtaka. Samninguri...
Engin tegund af skvísum eða fingramat upp­fylli við­mið - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Engin tegund af skvísum eða fingramat upp­fylli við­mið - Vísir
Birna Þórisdóttir, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild við Heilbrigðisvísindasvið HÍ, segir viðmiðin ansi ströng. Algengast sé að vörur falli á ...
Canary Islands: 34 dead after migrant boat sinks off Senegal en route to Europe
📅 09.11.2026 👁️ 1
Canary Islands: 34 dead after migrant boat sinks off Senegal en route to Europe
The Atlantic crossing to Spain's Canary Islands remains dangerous for migrants seeking a better life
Árásarmaðurinn í Kraká er látinn
📅 09.11.2026 👁️ 2
Árásarmaðurinn í Kraká er látinn
Maður sem skaut sex manns til bana og særði sextán í Kraká í Póllandi um helgina lést í morgun. Hann er 24 ára Pólverji og særðist lífshættulega eftir...
Leiðréttir sögusagnir um hversu mikla peninga hún græddi á Two and a Half Men
📅 09.11.2026 👁️ 2
Leiðréttir sögusagnir um hversu mikla peninga hún græddi á Two and a Half Men
Nýsjálenska leikkonan Melanie Lynskey vill leiðrétta sögusagnir um að hún hafi þénað 200.000 dollara (tæpar 25 milljónir króna) á þátt af Two and a Ha...
Leon Hill vill banna íslam á Vesturlöndum: „Ísland verður eins og Svíþjóð mjög fljótlega“
📅 09.11.2026 👁️ 2
Leon Hill vill banna íslam á Vesturlöndum: „Ísland verður eins og Svíþjóð mjög fljótlega“
Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill, sem vakið hefur mikla athygli fyrir harða gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja og íslam, segir að banna...
Viður­kennir að „of harka­leg“ stefna hafi valdið skaða - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Viður­kennir að „of harka­leg“ stefna hafi valdið skaða - Vísir
Forsetinn hefur í framhaldinu boðist til að gera samning við Demókrata um innflytjendamál og sagðist vera opinn fyrir samkomulagi um að leyfa einhverj...
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista
📅 09.11.2026 👁️ 2
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista Heim­skauta­ref­ur­inn verður settur á válista spen­dýra á Íslandi í fyrsta sinn í vetur. Fjörutí...
Monday’s weather improves across the Canary Islands after Storm Bruna
📅 09.11.2026 👁️ 2
Monday’s weather improves across the Canary Islands after Storm Bruna
The Canary Islands can expect a quieter day of weather today, Monday 9th November, following the passage of Storm Bruna over the weekend.There will st...