Spjallið með Frosta Logasyni
Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja, íslam og vaxandi áhrif íslamskrar hugmyndafræði á vestræn samfélög.
Í þessu viðtali við Frosta Logason í Spjallinu fer Hill yfir þá þróun sem hann telur ógna framtíð Evrópu. Hann ræðir afbrotatíðni innflytjenda, kynferðisbrot, velferðarkerfi Norðurlandanna og rannsóknir sem hann segir sýna vaxandi róttækni meðal ungra múslima í Evrópu.
Hill segist fá líflátshótanir nánast daglega vegna málflutnings síns og greinir frá því að sumar þeirra séu svo alvarlegar að hann geti ekki rætt þær opinberlega. Hann gagnrýnir jafnframt harðlega takmarkanir á tjáningarfrelsi í Bretlandi og Ástralíu.
Ein umdeildasta yfirlýsing hans í viðtalinu er að banna eigi íslam alfarið á Vesturlöndum. Hill viðurkennir að slíkt fæli í sér skerðingu á trúfrelsi en telur það nauðsynlegt til að vernda framtíð evrópskra samfélaga og réttindi kvenna.
Hann beinir einnig skýrri viðvörun til Íslendinga og segir að Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð og önnur Evrópuríki ef ekki verði gripið til róttækra breytinga á innflytjendastefnu.
„Ísland verður eins og Svíþjóð mjög fljótlega,“ segir Hill, sem hefur búið hér á landi um árabil og segist hafa orðið vitni að miklum breytingum á íslensku samfélagi.
Hill telur að Evrópa hafi aðeins örfá ár til að snúa þróuninni við og hvetur almenning til að láta ekki þagga niður í sér.
Ítarlegt og hispurslaust samtal um innflytjendamál, trúfrelsi, tjáningarfrelsi, þjóðmenningu og framtíð Evrópu.
Viðtalið fer fram á ensku.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/