Jónas og Valur Grettisson, blaðamaður Heimildarinnar, voru gestir Símonar Birgissonar í hlaðvarpinu Menningarvaktinni. Þar var rætt um leiksýninguna Högg í Þjóðleikhúsinu, danssýninguna Púðlusafnið í Tjarnarbíói og sniðgöngu Íslands í Eurovision.
„Þetta er risa menningarfrétt,“ sagði Símon um ákvörðun stjórnar Rúv á dögunum um að halda áfram að mótmæla þátttöku Ísraels í Eurovision og senda ekki íslenskt framlag í ár.
Valur Grettisson var á því að Rúv hafi tekið rétta ákvörðun.
„Það var gerð könnun á dögunum þar sem kom fram að yfir sjötíu prósent þjóðarinnar eru sammála því að taka ekki þátt í Eurovision. Þjóðin virðist sammála útvarpsstjóra hvað þetta varðar,“ sagði Valur.
Sjá einnig: Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision
„Er ekki bara málið að sjötíu prósent þjóðarinnar hafa ekki áhuga á Eurovision? Snýst þetta ekki um það. Þetta er kannski bara ekki þetta ótrúlega skemmtiefni sem menn héldu áður?“ spurði þá Símon.
Eurovision bara pólitík
„Ég held að meirihluti þjóðarinnar sé ekki miklir Eurovision-aðdáendur yfir höfuð,“ sagði Jónas Sen um keppnina.
„Eurovision var einu sinni tónlistarkeppni en það er langt síðan það var. Nú er þetta bara pólitík og það er það sem hefur farið svo mikið í taugarnar á mér við Eurovision. Þessi þjóð heldur með þessari þjóð og svo framvegis. Í staðinn fyrir að fólk pæli bara í því hvort þetta séu góð lög eða ekki. Ég vil fá það aftur. Og það gæti komið ef Rúv væri bara með sína eigin keppni,“ sagði hann.
Valur tók undir með Jónasi
„Ég held að allir hafi getað haft gaman af þessu. Við æsum okkur upp í einhverja vitleysu og teljum okkur trú um að við getum unnið. Þetta er kannski ágætis æfing í múgæsingu…. Þó að við förum ekki í Eurovision þýðir það hins vegar ekki að við þurfum að slaufa Söngvakeppni sjónvarpsins. Þessi þjóðaríþrótt okkar – að búa til smelli fyrir alþjóð og fara í keppni er í eðli sínu skemmtilegt og Eurovision á ekkert endilega einkarétt á því. Það væri alveg gaman að fá það aftur.“
Tónlistarmenn gert mistök
Símon var á því að krafa tónlistarmanna um að sniðganga keppnina væru mistök.
„Mistökin eru að það kemur bara í ljós hversu litlu máli þessi keppni skiptir yfir höfuð. Meira að segja minnast börnin mín ekki lengur á Eurovision, það er eins og þessi keppni hafi aldrei verið til. Ég held að þeir nagi sig í handarbökin núna því það gætu orðið mörg ár þangað til við tökum aftur þátt,“ sagði hann.
Valur sagði að það væri snúið að átta sig á hvenær Ísland gæti snúið aftur í keppnina.
„Innrásin í Gasa - eða hvað í ósköpunum á að kalla þá aðgerð - það er mjög óljóst hvort henni sé lokið eða ekki þó það sé vitað að Ísraelsmenn séu búnir að vera haga sér mjög undarlega á heimssviðinu. Það sjá allir. En hvenær gætum við snúið aftur? Er það þegar Ísraelar hætta að taka þátt eða er það þegar stríðinu er lokið?“ spurði hann.
Símon spurði Jónas að lokum hvað hans uppáhalds Eurovision lag væri og Jónas svaraði að bragði „Waterloo“ með sænsku poppurunum í ABBA. En af íslensku lögunum?
„Ég er ekki viss. Ég hef ekki fylgst með keppninni í langan tíma. Hef ekki skoðun á því,“ sagði Jónas.
Valur sagði það hneyksli að Jónas væri fylgdist ekki betur með en þá svaraði Jónas: „Ég er alveg til í að vera í dómnefnd!“
Menningarvaktin er á öllum helstu streymisveitum en auk þess er hægt að horfa á þáttinn í heild sinni hér að ofan. Auk Eurovision-yfirferðar ræddu þeir félagar Högg og Púðlusafnið í leikhúsunum og svo kom Ómar Úlfur Eyþórsson útvarpsmaður í plötuhornið og ræddi Scavenger of Hope, nýjustu sólóplötu Krumma Björgvinssonar.