Þá verður sagt frá því að ökumaður bifreiðar, sem hafnaði úti í Kleifá á Snæfellsnesi í gærmorgun, hafi verið úrskurðaður látinn á Landspítalanum. Tvennt var í bifreiðinni, bæði erlendir ferðamenn á þrítugsaldri, eftir því sem fram kemur í tilkynningu. Farþeginn komst út af sjálfsdáðum en ökumaður var fastur inni í bifreiðinni um nokkurn tíma. Þegar björgunarlið kom á vettvang náðist ökumaðurinn út úr bifreiðinni og var hann fluttur með þyrlu á Landspítalann. Rætt verður við björgunarsveitarmann sem kom að slysinu um aðstæður á vettvangi. Hann segir aðstæður hafa verið varasamar á vettvangi en vegfarendur höfðu reynt að bjarga manninum úr bílnum í straumþungri ánni.
Dýraverndarsamband Íslands - DÍS - vill að stjórnvöld endurskoði þann frest sem svínabændur hafi fengið til að uppfylla kröfur reglugerðar um velferð svína. Myndefni sem hefur verið í dreifingu og sýnir aðstæður svína hjá Stjörnugrís varpi ljósi á kerfisbundið vandamál, sem skapist þegar framleiðslusjónarmið fá meira vægi en velferð dýra. Fjallað verður um málið.
Forstöðumaður á mörkuðum hjá Arion banka vísar ásökunum um að íslenskir sjóðir okri á fjárfestum á bug. Að hennar mati sé samanburður á virkum sjóðsstýringum við vísitölusjóði líkt og að bera saman epli og appelsínur.
Þetta og fleira verður til umfjöllunar í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson