Kirishi-olíuvinnslan í Leníngrad-héraði er sú næststærsta í Rússlandi og er nærri Pétursborg. Við hefðbundnar aðstæður hefur þessi vinnsla verið notuð til að vinna úr um sjö prósentum allrar hráolíu sem unnin er í Rússlandi, eða um 350 þúsund tunnur á dag.
Héraðsstjóri Leníngrad segir að kona í nærliggjandi þorpi hafi dáið þegar brak úr úkraínskum dróna féll á hús hennar. Rússar segjast hafa skotið niður 430 úkraínska dróna víðs vegar um Rússland. 113 þeirra eiga að hafa verið skotnir niður yfir Leníngrad-héraði.
Héraðsstjórinn nefndi ekki skemmdir eða manntjón í olíuvinnslunni, sem Úkraínumenn hafa nokkrum sinnum ráðist á.
Myndefni frá Kirishi sem hefur verið birt á samfélagsmiðlum í Rússlandi sýndi í morgun töluverðan eld í olíuvinnslunni.
Additional footage showing a Ukraine drone attack on Russia’s Kirishi refinery. 2/ https://t.co/a97jfoBIgv
— Giorgi Revishvili (@revishvilig) November 9, 2026
Árásir Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi þykja vel heppnaðar en sala á olíuafurðum er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins og er notuð til að fjármagna stríðið gegn Úkraínu.
Sjá einnig: Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað
Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa orðið reiðir yfir þessum árásum sem Donald Trump hefur viljað kenna um hátt eldsneytisverð í heiminum, í stað stríðs Bandaríkjanna gegn Íran. Úkraínumenn hættu þessum árásum um tíð, að kröfu Bandaríkjamanna, en hófu þær aftur eftir mannskæðar árásir Rússa gegn óbreyttum borgurum í Úkraínu.
Á sama tíma hafa Rússar gert umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu.
Erfið staða í Kænugarði
Þær árásir hafa reynst Úkraínumönnum erfiðar á undanförnum vikum, eins og sambærilegar árásir hafa gert á undanförnum árum. Yfirlýst markmið þeirra er að gera úkraínsku þjóðinni erfiðara að komast í gegnum veturinn.
Orkuverðin kringum Kænugarð hafa orðið fyrir gífurlegum skemmdum og þá hafa árásir einnig verið gerðar á spennulínur til höfuðborgarinnar, þar sem rafmagnsleysi er nú algengt.
Rússar hafa einnig gært árásir á annarskonar innviði eins og vatnsveitur.
Íbúar í Kænugarði eru sagðir hafa töluverðar áhyggjur af vetrinum, sem gæti reynst þeim erfiðari en síðustu ár. Í samtölum við blaðamann Kyiv Independent segjast margir hafa áhyggjur af því að þeim muni reynast erfitt að halda á sér hita. Íbúar segjast einnig hafa áhyggjur af fráveitumálum og því hversu auðvelt aðgengi að matvælum verður í vetur.