Forsvarsmenn TikTok, sem er í eigu kínversks fyrirtækis, viðurkenndu í tengslum við dómsmál í Bandaríkjunum árið 2022 að barnaníðsefni væri vandamál á miðlinum.
Áðurnefndir rannsakendur, sem tilheyra samtökum sem kallast Maldita.es, segjast hafa fundið að minnsta kosti 1.183 slík myndbönd á TikTok sem búið var að horfa samanlagt 48 milljón sinnum á. Rannsakendur segjast einnig hafa fundið rúmlega 26 þúsund aðganga sem notaðir voru til að birta athugasemdir við myndböndin og deila þeim.
Rannsóknin ber titilinn „TikTok, heimili barnaníðingsins“. Á meðal þess efnis sem fannst var myndefni af nauðgunum á börnum.
Yfir rúmlega mánaðarlangt tímabil fundu rannsakendur áðurnefnd myndbönd. Þeir tilkynntu fimmtíu þeirra gegnum hefðbundið ferli TikTok en einungis fimm þeirra voru fjarlægð.
TikTok, el hogar del pederasta. Hemos localizado, y visto, más de 1.000 vídeos con contenido explícito de abuso infantil y también hemos comprobado cómo las propias herramientas de la plataforma conducen directamente a este material y lo “promocionan”. La entrega de hoy aquí 👉🏽 https://t.co/9Aqvkyh6V1
— Maldita.es (@maldita) November 9, 2026
Í samtali við El País segir einn forsvarsmanna hópsins að umfang barnaníðsefnis á TikTok sé mun meira en finna megi á öðrum sambærilegum miðlum. Myndefnið finnst með notkun tiltekinna myllumerkja (#) og þegar blaðamenn prófuðu þau á dögunum og segja mjög auðvelt að finna þannig barnaníðsefni á TikTok.
Þeir segja enn fremur að sambærileg leit á Instagram skili eingöngu skilaboðum um að barnaníðsefni sé ólöglegt og fylgja því leiðbeiningar um að leita sér hjálpar við barnagirnd.
Vill að Evrópa grípi til aðgerða
Sira Regom, barnamálaráðherra Spánar, tilkynnti í morgun að hún hefði farið fram á það við saksóknara að barnaníðsefni á TikTok yrði rannsakað. Þá er verið að skoða að loka á samfélagsmiðilinn á Spáni.
Samkvæmt heimildum El País er málið litið mjög alvarlegum augum hjá yfirvöldum. Embættismenn segja að upplýsingar sem áðurnefndir rannsakendur söfnuðu krefjist hraðra viðbragða, bæði á Spáni og einnig í gervallri Evrópu.
Rego hefur beðið forsvarsmenn TikTok á Spáni að koma á fund sinn. Hún vill að þeir útskýri stöðuna og fari yfir aðgerðir sem þeir ætla að grípa til.