Dráttur á innleiðingu þeirrar löggjafar frá Evrópusambandinu sem á við um innri markaðinn hefur í nokkrum tilvikum leitt til þess að reglugerðir og tilskipanir sem eru ekki lengur í gildi í Evrópu hafa verið teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
Þetta segir Árni Páll Árnason stjórnarmaður í ESA, eftirlitsstofnun EFTA. Rætt var við hann í Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.
Biðlistinn svokallaði; gerðir og tilskipanir sem á eftir að innleiða, telur nú um sex hundruð mál, fyrir utan þær gerðir sem teknar hafa verið upp í samninginn en eru ekki komnar inn í lagaumhverfi EES-ríkjanna.
„Það er vaxandi tilhneiging innan Evrópusambandsins núna að hafa reglurnar einfaldari, draga úr skýrslukvöðum og skriffinnsku, þannig að það má almennt gera ráð fyrir að nýrri reglur séu auðframkvæmanlegri og að því leyti meira ívilnandi fyrir fólk og fyrirtæki. Þannig að þetta er á margan hátt mikil hefndargjöf fyrir [EES] ríkin, þessi langi hali,“ segir Árni Páll Árnason.