Vísi barst á dögunum ábending um að Hildur Björnsdóttir væri komin á nýjan borgarstjórabíl, nánar tiltekið Audi-jeppa í stærri kantinum.
Í svari við fyrirspurn Vísis vegna þessa til borgarinnar segir að nýr bíll hafi ekki verið keyptur fyrir borgarstjóra heldur sé honum nú ekið um á bíl á rekstrarleigu af gerðinni Audi Q7 3.0. Fyrri bíll, Hyundai Ioniq 5, hafi orðið fyrir tjóni í mars og því verið seldur.
Ekki hafi verið tekin ákvörðun um kaup á nýjum bíl en við ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag verði meðal annars horft til hagkvæmni og rekstrarkostnaðar. Samanlagður árlegur kostnaður vegna embættisbifreiðar og launa bílstjóra sé um 15 milljónir króna.
Rétt sé þó að taka fram að bílstjóri borgarstjóra sinni að auki ýmsum verkefnum fyrir skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.
Loks segir að ekki séu til staðar sérstök formleg skilyrði um embættisbifreið borgarstjóra. Við val á bifreið sé einkum horft til áreiðanleika, öryggis, hagkvæmni í rekstri og umhverfissjónarmiða, líkt og við val á sambærilegum embættisbifreiðum ráðherra.