Erlendur ferðamaður á þrítugsaldri lést eftir alvarlegt umferðarslys á Snæfellsnesi í gærmorgun, sunnudaginn 8. nóvember. Bifreið sem hann ók fór út af Snæfellsnesvegi við Kleifá og hafnaði á hvolfi í ánni.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi.Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 10:28. Tveir erlendir ferðamenn á þrítugsaldri voru í bifreiðinni þegar slysið varð.
Erlendur ferðamaður lést í bílslysi á Snæfellsnesi