Maður sem grunaður er um að hafa banað föður sínum á heimili sínu í Kópavogi þann 26. júlí síðastliðinn hefur verið ákærður fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi. Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan hann var handtekinn vegna málsins þann 28. júlí, en hann er sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins, og hinn látni var eiginmaður hennar.
Manndráp í Kópavogi: Banaði föður sínum í rúminu