Lögregla í Póllandi rannsakar enn árásina á aðaltorginu í Kraká á laugardag þar sem sex manns létust og fimmtán særðust. Árásarmaðurinn lést svo af sárum sínum á sjúkrahúsi í nótt.
Hin 21 árs Magdalena Oksińska og foreldrar hennar og árásarmannsins fundust látin í íbúð hins 24 ára Michał Oksiński í Ostrowiec Świętokrzyski, um 200 kílómetrum norður af Kraká. Faðirinn var 53 ára og móðirin 52 ára.
Lögregla í Póllandi greindi frá því í dag að fjögur skotvopn hafi fundist í bíl og á líkama Oksiński og að hann hafi skotið úr byssum sínum nokkur hundruð sinnum. Enn sé of snemmt að segja eitthvað til um ástæður árásarinnar og þá liggur ekki fyrir hvenær Magdalena og foreldrarnir létust.
„Við erum harmi slegin og finnum fyrir óbætanlegum missi. Við kveðjum Magdu, unga listakonu og meðlim í akademísku samfélagi okkar, en lífi hennar lauk á svo hörmulegan hátt,“ skrifar rektorinn Andrzej Bednarczyk í færslu á vef Jan Matejko-listaskólans. Magdalena var þar á þriðja ári.
Bednarczyk segir að nemendur og starfsfólk standi með fjölskyldum fórnarlambanna, hinum slösuðu og ástvinum þeirra. „Við minnumst allra þeirra sem nú þurfa að takast á við þjáningar, ótta og þann yfirþyrmandi missi sem fylgir slíkum atburðum,“ skrifar Bednarczyk.
Árásarmaðurinn var klæddur í herklæði en var þó ekki í hernum. Hann var skotinn og handtekinn eftir að hafa reynt að flýja af vettvangi.
Þegar hefur verið greint frá því að hin látnu séu pólskur karlmaður um fimmtugt, 32 ára breskur karlmaður, 53 ára pólsk kona, 47 pólsk kona, 61 árs pólsk kona og 51 árs austurrísk kona.
Rynek Główn-torgið er í gamla bænum í Kraká, sem er á heimsminjaskrá UNESCO og fær árlega um 15 milljónir ferðamanna í heimsókn.